Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1900, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.11.1900, Blaðsíða 12
t$ó sem allir aðrir ráðgjafar eru að gjöra að engu. Sorglega lengi hefir það brunnið við á íslandi, að flestar umbœtr hafa dáið í reifum og menn hafa misst málið af þögn. Hið bilaða kirkju- og kristindóms-ástand hefir verið bundið saman með lögum, ,,formum“ og venjum, svo fáir hafa þorað að snerta við j?ví—nema þeir, er vildu brjóta það gjörsamlega, heldr en brotnu verkfœri, sem enginn vinnr fullt verk með. þetta vita nú eiginlega allir, þó enginn vilji segja það. það er svo ríkt í eðli mannanna að sofa,-—liggja í andlegu dái og dreyma um hlutina. Eg held það sé ekki fjarri sanni, að kirkjan sé því eiginlega mörgum að eins nokkurs konar draumkona — sumum fyrir illu og öðrum fyrir góðu í draumum sínum. Pólitíkin, nú bráðlifandi, varð því víða œðri en kirkjan. Alþing varð allt, en synodus ekkert, —jafnvel í augum prest- anna. Kirkjulegir fundir, sem héraðsfundirnir, dóu út fyrir þjóðminningar-hátíðum, sem ekkert þjóðlegt hafa í sér fólgið nema nafnið. Kristnitökuhátíðin, haldin á sunnudag, þarf að haldast með hesta-ati og dansi —fyrir fólkið. Stjórnartíð- indin komu sumsstaðar í stað biblíunnar, ,,þyrnar“ þorsteins hjá of mörgum fyrir Hallgríms-sálma, og blöðin, eins og þau eru sum, voru höfð til húslestra í stað góðra guðsorðabóka. Svo fór, að trúarhugsanir, tal margra og sumar kirkjuhreyf- ingarnar lutu ekki að því, sem menn trúSu, heldr að því, sem menn neituSu. Einnig fríkirkjuhreyfingin varð öfug á Islandi, eins holl og rétt sem hún hefði getað orðið og hefir víðast reynzt. Menn slitu sig úr þjóðkirkjunni eins og kunnugt er, reiðir yfir embættaveitingum eða gjalda-fyrirkomulagi, af uppreisn eða óánœgju gegn hinu ytra fyrirkomulagi kirkju- málanna, en ekki fyrst og aðallega af kristilegri trúarhvöt, lifandi löngun hjartnanna til að skilja sig frá þjóðkirkjufélag- skapnum í því skyni, að geta lagt meira á sig fyrir kirkjuna og unnið á einhvern hátt betr að lifandi trú og sáluhjálpar- efnum sfnum og sinnar eigin þjóðar. þetta er sögulega þann- ig, marg-ítrekað opinberlega í ritum og rœðum. Enda munu allir leiðandi menn á íslandi skiija það nema einn maðr. Og stundum eru hlutirnir of nœrri manni til að sjást vel og rétti- lega. Kirkjan verör hvorki kirkja né fríkirkja af því einu, að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.