Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1902, Síða 5

Sameiningin - 01.04.1902, Síða 5
21 frestaö sökum mislinga, er þá gangi í þeirri byggö. En vegna samtalsfundanna í byggöunum á meginlandi, sem auglýstir höfóu verið, hlaut eg þó að fara norör. Séra N. Steingrímr Þorláksson í Selkirk var fastráðinn í því að vera með mér á þeirri ferð. í söfnuði hans í Selkirk skyldi og samtalsfundr haldinn á sunnudagskvöld 9. Marz. Enda vorum við séra Friðrik J.Bergmann komnir þangað í tœka tíð. En hvorki séra Björn B. Jónsson né séra Hans B. Thorgrímsen gat komið. Selkirk-fundrinn var fjölmennr—í kirkju safnaðarins þar. Inngangsrœðuna hélt séra Friðrik. En efnið á þeim samtals- fundi og eins hinum, sem síðar voru haldnir í Nýja Islandi, var um það að trúa kristilega. Næsta dag sneri séra Friðrik heimleiðis til Winnipeg—því hann gat ekki verið burtu frá kennslustarfi sínu í Wesley College—, en við séra Steingrímr ókum norðr að Gimli og höfðum mjög greiða og góða ferð. Að kvöldi næsta dags, þriðjud. 11. Marz, var haldinn samtalsfundrinn á Gimli. Hann átti að verða fyrr um daginn, en jarðarför stúlku einnar þar í nágrenninu, dóttur eins af frumbyggjum þeirrar byggðar (Árna Oddssonar frá Grenivík við Eyjafjörð), sem látizt hafði eftir langan og harðan sjúk- dóm, hamlaði því. Líkfylgdin var mjög fjölmenn og útfarar- athöfnin gekk inn á hinn fyrirfram ákveðna fundartíma. Varð því að fresta fundinum til kvölds, og fyrir þá sök varð hann fámennari en ella myndi. Það varð mitt hlutverk að halda inngangsrœðuna á þeim fundi. En sjálfr var drottinn áðr búinn að halda þar inngangsrœðu verklega með sorginni þar á staðnum út af láti stúlkunnar, sem eðlilega var svo aug- sýnileg við útförina hjá hinum aldrhnignu foreldrum, unnusta hennar og mörgum öðrum. Slík sorg er hin lang-bezta inn- gangsrœða, þegar umtalsefnið er um það ,,að trúa kristilega“, eins og eg líka við það toekifœri minntist á. Elskan syrgjandi andspænis dauðanum hefir það í för með sér, að meginmál trúar vorrar, hið dýrðlega sannleiksmál um Jesúm Krist kross- festan, dáinn og frá dauðum upp risinn, kemr fram úthleypt fyrir hinum andlegu augum vorum. Á miðvikudag fórum við séra Steingrímr ásamt séra Rún- ólfi Marteinssyni norðr eftir Winnipeg-vatni allt til Hnausa í

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.