Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1902, Side 8

Sameiningin - 01.04.1902, Side 8
24 Veriö í Nýja íslandi á tímabili því, er liðiö er síðan kirkju- félag vort var stofnað, að undanteknum samskonar fundi að Gimli í sambandi við ársþing þess síðastliðið sumar. Eftir ástœðum heppnuðust fundir þessir vel viðunanlega. Hluttaka leikmanna í rœðuhöldunum á fundinum á Gimli var fullt eins góð og mikil og vér höfum átt að venjast að undanförnu ann- arsstaðar við slík tœkifœri. En að því er snertir samtals- fundinn í Selkirk, þann er í þetta skifti var haldinn, þá var það einkennilegt, að það voru eingöngu utansafnaðarmenn, sem þar tóku til máls af hálfu leikmanna. Af vígslu kirkj- unnar í Mikley gat samkvæmt áðr sögðu ekki orðið í þetta sinn. En þessi ferð vor til samtalsfundanna í Nýja Islandi verðr mönnum líklega lengi minnisstœð sökum hins stórfellda snjó-áfellis, sem kom fyrir að þeim nýafstöðnum. Eg hefi aldrei séð slíkan hríðarbyl hér í Ameríku. Þetta hefði fyrrum verið kallað gjörningaveðr. En nú er sú hjátrú sem betr fer útdauð hjá fólki voru. Og í augum þeirra, sem hafa lært að tnia kristilega, eru slík umbrot í náttúrunni, slík dimm og hörð óveðr, hátfðleg tákn hinna œgilegu mótlætishríða, sem drottinn náðarinnar einatt af vísdómsráði sínu lætr koma fyrir á mannsæfinni, ekki sízt þeirra, sem standa honum allra næst. Af fólki því, er sókti fundi þessa í Selkirk og Nýja Islandi, muna þá líka væntanlega þeir og þær, sem mest hafa af mót- lætisreynslu að segja frá liðnum æfidögum, öllum öðrum betr eftir því sannleiksorði, er við þessi tœkifœri var fram borið um það að trúa kristilega. J' BJ' Prestaskortrinn. Eftir séra Björn B. Jónsson. (Niðrlag.) En hvernig eigum vér að fara að, svo vér fáum ungu mennina vora efnilegu til að búa sig undir prestskap og gjör- ast kennimenn hjá oss ? Eina ráðið er að vekja söfnuðina og allan vorn kristna lýð til meðvitundar um skyldu sína í þessu efni. Heilagr andi talaöi til safnaðarins í Antíokkíu forðum og sagði:

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.