Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1902, Side 4

Sameiningin - 01.09.1902, Side 4
Sunnudagsskólakennararnir í Minneota hafa eina undirbún- ingsaöferö, sem eg vildi leyfa mér að mæla með, ekki vegna þess, að hún er til orðin þar og eg álíti hana betri fyrir það, heldr vegna þess, að árangrinn er auðséðr í skólanum. Kennslan, sem auðvitað er að mörgu leyti enn ábótavant, heíir þó tekið miklum framförum síðan þessi kennsluaðferð var upp tekin. En hún er í því fólgin, að kennararnir koma saman á fund einu sinni í hverri viku til að búa sig undir kennsluna næsta sunnudag ; hafa þeir þá reglulegan skóla, og kennir einn af kennurunum þá hinum, svo annar á næsta fundi, o.s. frv. Búizt er við, að allir kennararnir sé vel kunn- ugir lexíunni; sé búnir að lesa hana, og þær útskýringar, sem fyrir hendi eru, áðr en þeir koma á fundinn, en þó einkum sá, sem í það skifti á að kenna. Hann verðr að vera sérstaklega vel undirbúinn. Það, sem mælir með þessari aðferð, er það, að sá, sem á að kenna í það og það skifti, verðr að leggja mikið á sig við að læra lexíuna svo vel, að hann geti komið fram, ekki að eins fyrir kennarana, sem hann ef til vill veit að eru honum fremri að einhverju leyti, annaðhvort vegna lengri reynslu í kennslustarfmu, eða vegna meiri hœfileika, heldr líka fram fyrir prestinn, sem ætíð er viðstaddur og hlustar á og þá oft gefr leiðbeiningar á eftir, ef honum finnst einhverju ábótavant við kennsluna, annaðhvort ekki nógu vel útskýrt, eða spurningarnar ekki nógu skýrar, eða það, að kennarinn hafi ekki getað dregið fram hina andlegu hlið lexí- unnar eins og hina sögulegu. Það er ekki áreynslulaust fyrir þá menn, sem aldrei hafa gengið í skóla sjálfir, að koma svona fram til að kenna öðrum, ef til vill langtum foerari mönnum. En einmitt við áreynsluna aukast kraftarnir ; og kennarinn, sem í fyrsta sinn kemr fram með hálfum huga og hugsanina á víð og dreif, fær við œfinguna meira hugrekki, og lærir að hugsa og kenna miklu skipulegar, og þá auðvitað kemr fram í skólanum miklu hœfari en annars. Þessir kennslufundir hafa líka það gott í för með sér, að hœgra er fyrir prestinn og formann sunnudagsskólans að komast eftir hœfileikum hvers kennara, og hvar hver einn sé líklegastr til að gjöra mest gagn í skólanum ; því einn kennari getr

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.