Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1902, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.09.1902, Blaðsíða 14
110 Þær eril hæfilega langar, þessar prédikanir; hvorki of langar né of stuttar, eftir mínu viti. A8 því leyti eru þær al- gjörlega sniðnar eftir því, sem bezt á viö nú. Eg tel þaö mik- inn kost. Því löng rœöa þreytir, hversu góö sem hún er, nema þá viö einstök tcekifœri. Stíll höfundarins er sléttr, einfaldr og blátt áfram. Hann er hvergi eiginlega skáldlegr, miðar ekki sérlega hátt, er nærri því alveg líkingalaus; en orðin falla ætíð býsna þétt utan um hugsunina. Höf. snýr sér beint til áheyrendanna og leggr á- minningar sínar þeim eins nærri og honum er unnt. Hann kemr aldrei með neitt, sem meiðir tilfinningar manna eöa smekk. Bókin er prýðilega úr garði gjör aö öllum ytra frágangi, meö nýju, ljómanda letri, og mynd höfundarins. Það er íull- komin ástœða til að gleðjast yfir því, aö hún er komin út. Fyrst og fremst er eg viss um, aö öllum, sem prédikanir þess- ar lesa, verða þær til blessunar og sálubótar. Og þar næst er mjög margt af þeim aö læra fyrir ísl. presta, sem í svo mörgu geta tekiö sér þær til fyrirmyndar. Margt fleira mætti um þær segja, en þetta verðr að vera nóg í bráð. --------^OOO-í-------- Kirkjan í Mikley, tilheyrandi hinum lúterska söfnuði ís- lendinga þar, var vígð sunnudaginn 14. þessa mán. (16. e. trín.). Vígsluna framkvæmdi forseti kirkjufélagsins, séra J. Bj., með aðstoð þeirra séra N. Steingríms Þorlákssonar og séra Rúnólfs Marteinssonar. Séra Steingrímr prédikaði við þetta tœkifœri og lagði út af guðspjalli dagsins, sem segir frá því, er Jesús vakti upp frá dauðum son ekkjunnar í Nain. Nokkur hópr fólks var til altaris. Tveir kirkjuvígslusálmar voru í þetta sinn sungnir, sem sérstaklega höfðu verið orktir fyrir þessa stórhátíðarstund í sögu safnaöarins, og munu þeir báöir í heild sinni birtast í næsta blaði ,,Sam. “ Höfundr þeirra er hr. Magnús Einarsson, gamall guðhræddr maðr, mjög einkennilegr, sem eitt sinn átti heima í Mikley, en flutt- ist fyrir nokkrum árum vestr á Kyrrahafsströnd. Áðr en hann fór þangað orkti hann sálmana, skildi þá eftir í hand- ritum hjá kunningjum sínum í eynni og bað þá sjá um, að sálmarnir væri sungnir, þá er kirkjari væri vígð.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.