Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1902, Side 8

Sameiningin - 01.09.1902, Side 8
104 Salmanassar, sem unnu og eyddu Ísraelsríki. Úr suðrparti dalsins kom Nebúkadnesar, sem lagði Jerúsalem í rústir. I þeim dal voru Gyðingar í herleiðingar-útlegðinni i 70 ár. Margt í sögu Gyðingaþjóðarinnar er því náknýtt við sögu þjóðanna í Mesopotamíu-dalnum. Ef nú saga sú, sem biblí- an hefir meðferðis, væri mjög óáreiðanleg, mætti að öllum líkindum þarna fá áþreifanlegar sannanir, sem hefði vísinda- legt gildi, fyrir því, að í henni sé svo eða svo margar söguleg- ar villur. Auðvitað má vel segja, að þegar tvær bœkr liggja fyrir manni og sín segir hvað um eitthvert ákveðið efni, þá hljóti maðr og að vera í vafa um það, hvor segir satt. Maðr hafi ekki meiri vissu fyrir því, að leirspjöldin í Babýlon segi satt frá, fremr en hinar helgu bœkr Hebrea. Engu að síðr verðr þó auðsætt, þegar allt er nákvæmlega borið saman, að allmikið af því, sem fyrir liggr, hlýtr að vera óyggjandi sann- leikr. Þetta er vísindaleg rannsókn. Ef biblían væri í sögu- legu tilliti óáreiðanleg bók, myndi henni af þessu búin vera hin mesta hætta. En hver hefir svo reyndin orðið ? Sú, að í öllum verulegum atriðum hefir þessi rannsókn orðið söguleg- um áreiðanleik biblíunnar til stuðnings. Hér skal bent að eins á eitt dœmi í þessu sambandi. Það dœmi er reyndar ekki úr Mesopotamíu-dalnum, heldr frá Egyptalandi. En það stendr nákvæmlega eins á með Egyptaland í þessu tilliti eins og Mesopotamíu-dalinn. Það land kemr við sögu Gyðinga- þjóðarinnar, og það á jafnvel enn þýðingarmeiri hátt en Mesopotamíu-dalrinn. Fyrir árið 1887 var því haldið fram af fjölda lærðra manna, sem voru að eiga við rannsókn biblíunnar, að Móses- bœkrnar og Jósúabók (sexbóka-safnið, sem nú er kallað), gæti ekki verið ritaðar af þeim, sem þær bœkr eru kenndar við, fyrir þá sök, að ritlistin hafi þá ekki verið kunn á því svæði. En það ár fannst í gryfju hjá Tel-el-amarna, þorpi einu í Egyptalandi, heilt safn af leirspjöldum með samskonar fleygletri og vér finnum hjá Mesopotamíu-mönnum. ÞeSsi spjöld voru mestmegnis bréf frá konungum og landstjórum á Sýrlandi, Fönisíu og Kanaanslandi til konunganna Amenophis JII. og Amenophis IV., sem ríktu á Egyptalandi frá því hér

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.