Sameiningin - 01.09.1902, Side 15
III
Mikleyjarkirkja er steinsteypt hús, laglegt, þótt lítiö sé.
Hún stendr á fögrum staö, viö Mylnuvíkina norðaustan til í
eynni. Eyjarbúar reistu hana árið 1890, en ágreiningr út af
trúmálum olli því lengi lengi, að hún gat ekki orðið vígð.
Til var ætlazt, að vígsla kirkjunnar yrði framkvæmd í Marz-
mánuði síðastliðnum. En þá kom fyrir hindran sú, sem áðr
hefir verið um getið í ,,Sam. “ (xvn, 2 — bls. 20—21).
Prestr Mikleyjarsafnaðar, séra Rúnólfr, lýsti yfir því í
lok kirkjuvígslu-guðsþjónustunnar, hvílíkt fagnaðarefni þessi
atburðr væri söfnuðinum eftir hina löngu bið og sáru trúmála-
baráttu. Þrautseigja og staðfesta þeirra manna, sem helzt
hafa staðið fyrir málum safnaðarins í stríði liðinnar tíðar, er
þeim til mikils sóma. Og sérstaklega eiga konurnar í Mikley
þakkir skilið fyrir það, sem þær hafa gjört til þess að prýða
kirkjuna.
Áðr en mjög langt líðr mun séra Rúnólfr, ef guð lofar,
koma með dálítið ágrip af sögu Mikleyjarsafnaðar í ,,Sam. “
Trúarsamtalsfundir þrír hafa nýlega haldnir verið hjá
oss. Hinn fyrsti í kirkju Mikleyjarsafnaðar 14. Sept., sama
daginn, sem kirkja sú var vígð, seinna um daginn. Annar í
kirkju Selkirk-safnaðar að kvöldi hins 15. Og hinn þriðji í
Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg að kvöldi hins 18. Um-
rœðu-efnið á öllum þessum fundum var: HvaS gjörir mann-
inn sœlan? —• Málshefjandi á Mikleyjarfundinum var séra Jón
Bjarnason, á fundinum í Selkirk séra Hans B. Thorgrímsen,
og á fundinum í Winnipeg séra Rúnólfr Marteinsson. Allir
fundirnir voru fremr vel sóttir og heppnuðust yfir höfuð vel.
Á fyrsta fundinum voru þrír af prestum kirkjufélagsins, þeir
sömu, sem tóku þátt í kirkjuvígslunni; á öðrum fundinum
fimm, einn þeirra séra Friðrik J. Bergmann ; á hinum þriðja
fjórir, þeir sömu sem voru á fundi Selkirk-safnaðar nema
séra Friðrik, er þá var kominn út í Argyle-byggð í skólamáls-
erindum.
Séra Friðrik J. Bergmann hefir nú fyrir fullt og allt setzt
að hér í Winnipeg, og byrjar kennslustarf sitt á Wesley Col-
lege undir eins eftir lok þessa mánaðar. Hann er ráðinn af
skólamálsnefnd kirkjufélags vors til kennaraembættisins upp á
1200 dollara árslaun. Þetta injög þýðingarmikla fyrirtœki