Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1902, Síða 11

Sameiningin - 01.11.1902, Síða 11
139 annarra þjóSa. Og stundum kemr þaS enda fyrir, að hún sígr enn lengra niSr. Það var á einni slíkri niSrlægingartíö, aS þaS gjörSist, sem frá segir í kapítulanum úr fyrri Samúelsbók, sem hafðr er hér fyrir texta. ÞaS var í lok dómaratímabilsins, eftir að Gyöingar höfðu búið í fyrirheitna landinu nærri því 300 ár frá því, er þeir komu þangaö frá Egyptalandi. ASal-stjórnarsetr og guSsþjónustustaör landsins er nú borgin Síló. Þar gegnir öldungrinn Elí bæði dómara og æösta prests embætti. Þegar saga þessi gjörist, er hann orSinn háaldraðr maör. Elí hefir víst veriö sérlega guðhræddr og góðr maSr, en hann skorti þrek til aö kœfa niSr hina sívaxandi óreglu og siSspilling, er nú var komin frammeðal lýðsins og einkum sjálfrar prestastéttar- innar. Elí átti tvo sonu ; hét annar Hofní og hinn Píneas. Þeir voru báöir prestar og þjónuöu í Síló, og er að sjá sem þeir hafi verið búnir aS taka mest ráðin af föður sínum ; þeir voru hræðilega siöspilltir menn. Þeir hugsuðu eigi um annaö en aS ábatast sjálfir á guðrœknis-athöfnum þeim, er þeir höfðu um hönd, og fylgdu aörir prestar dœmi þeirra. Auk þess höfSu þeir margar svívirSingar í frammi. Elí fékk hér ekki rönd við reist. Hann hafSi ekki agaS syni sína meöan þeir voru ungir, og nú réS hann ekkert viS þá. Elliár hans urðu því eymdarár og dauöi hans ömurlegr. ÞaS var ekki að undra, þótt dimmt væri yfir landi og þjóð, þar sem svona var ástatt. Enda segir svo hér í textan- um : ,,Og orS drottins var sjaldgæft á þeim dögum ; vitranir voru sjaldgæfar. “ Kennimannastéttin var spillt og ónýt ; guðs orö var gleymt eöa rangfœrt; guð almáttugr horfinn út úr sögunni. AstandiS hefir verið aS sfnu leyti eins og var í kirkjunni kristnu á dimmu öldunum rétt á undan siöabótinni lútersku. Spilling, eymd og dauöi varyfirlandi og lýS, sökum þess að ,,guös orð var sjaldgæft“. Gamli dómarinn Elí fékk eigi að gjört, en syrgði og grét ástandiö. En guS hefir ekki gleymt sínu fólki ; hann uppvekr mann til að leiöa þaS út úr myrkri til ljóss. Upp viS rœtr Efraim-fjalls, í Rama, búa hjón nokkur,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.