Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1904, Síða 8

Sameiningin - 01.12.1904, Síða 8
152 en á ensku, eins og allir skilja, sem um þaö vilja hugsa. Vér Isl, erum svo fáir. Markaörinn hjá oss þess vegna svo lítill, eins og smá-ey í samanburöi við heimsálfu, þegar um enska markaðinn er að rœöa. Þetta gjörir þaö svo miklu dýrara fyrir oss aö gefa nokkuð át. Þó eiga ,,Ljósgeislar“ aö seljast fyrir sama verð hjá oss eins og svipuð spjöld seljast á ensku, aö eins io cent fyrir 52 spjöld. Eitt spjald er ætlað hverjum sunnudegi á árinu.— Það var ráðizt í að gefa út ekki svo lítið upplag, til þess unnt væri að selja með þessu verði, í von um að salan yrði betri. En þá ríðr á því, að spjöldin verði vel keypt. Annars verðr útgáfan byrði fyrir kirkjufélagið. Muni nú allir góðir menn þetta og sýni, að þeir kunni að meta þetta, sem nefndin hefir ráðizt í. Nafnið á spjöldunum—,,Ljósgeislar“—á að minna á, að þau eiga að flytja geisla frá ljósinu, guðs orði, sem er ljósið á vegum vorum, af því Jesús Kristr, ljós heimsins, er í því og gjörir það að ljósinu. Þeim megín, sem nafnið er, er biblíu- mynd (ekki lit-mynd) á hverju spjaldi með nafninu á mynd- inni fyrir neðan og tilvitnun til kafla þess úr ritningunni, sem myndin á að útskýra. Hinum megin er stuttr minnistexti, lítil saga út af myndinni, spurningar út af sögunni með svör- um, og svo fimm biblíusögu-spurningar með svörum. Lexí- urnar á spjöldunum eru með áframhaldandi númerum,alls 52, jafn-margar og sunnudagarnir á árinu. ,,Ljósgeislar“ eru ofr lítil biblíusaga með myndum. Myndirnar eru góðar og skýrar. Ekki er ætlazt til, að ,,Ljósgeislar“ sé að eins fyrir sd.sk., heldr að þeir verði líka notaðir, þar sem engir sd.sk. eru, á heimilunum við kristindóms-uppfrœðslu. Það má byrja að kenna börnum kristindóminn með þeim. Líka má láta börn œfa sig í að lesa á þeim. Það er kostr kennslunnar vegna, að það eru spjöld. Barnið fær að eins eitt spjald í einu. Hin eru geymd. Næsta spjaldið fær barnið akki fyrr en það er búið með það, sem það hefir. Þá er það líka geymt. Bæði geymast spjöldin betr með þessu móti og svo lesa börnin og læra með meiri

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.