Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1940, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.03.1940, Qupperneq 12
42 mun séra Sigurgeir Sigurðsson, fyr prestur á ísafirði, nú biskup íslands verið hafa, en einn hefir hann ekki getað áorkað slíku, en hefir átt samhug og framréttar hendur prestanna á Vestfjörðum, ella myndi árangurinn ekki jafn glæsilegur orðið hafa. Mér virðist þetta dæmi bræðra, ís- lenzku prestanna á þessum afskektasta og um margt ægi- legasta hluta íslands, talandi vottur þess er gera iná, og sláandi dæmi til vor stilað, er berjumst við marga og ótví- ræða erfiðleika í hinni mildu dreifingu þessa meginlands um að hefjast handa, og talca tíma til þess þrátt fyrir allar annir og örðugleika, að hlynna að vorum eigin innri og andlegu tengslum hverir við aðra, sem starfs- og félags- bræðraheild til sigurs vorum sameiginlegu áhugamálum Guði til dýrðar. Við erum að vísu fáir að tölunni til, ein- angraðir og önnum hlaðnir, en mikið má í þessu efni, sem í öllum öðrum, ef vel vill. Krossinn Eftir séra Sigurð C. Christopherson. Eg vil verða við tilmælum eldri konu, að geta um at- burð, sem henni bar fyrir sjónir á liðnu ári. Kona þessi er kunn að öllu góðu, og nýtur almennrar virðingar; skýr er hún með afbrigðum, og hefir ekki farið á mis við reynslu- eld mannlegs lífs. Hefir trúin reynst henni óbrigðult at- hvarf í raunum hennar. Vil eg sem næst fylgja orðum hennar: Það var á föstudaginn langa að morgninum, að eg lá vakandi í rúmi mínu; varð mér litið á vegginn á móti; þótt- ist eg þá sjá grá-rauðan skýhnoðra, sem virtist standa út úr veggnum og hylja vegginn að nokkru. Alt í einu opnað- ist skýið í miðju, og sást partur af krossi, sem virtist laus við þilið; mannshönd eða armleggur virtist hvíla við aðra þverálmu krossins. Krossinn sást fremur óskýrt vegna blá- dökkrar móðu, sem grúfði umhverfis hann. Svo hvarf sýnin. Morguninn eftir birtist sýning aftur á líkan liátt, en nú var mannshöndin horfin, en aftur sást krossinn skýrt; virtist hann gerður úr grófum og' upplituðuin við, sem hefði legið lengi í vatni; með það sama var sýnin horfin. Á páskadagsmorguninn var mér litið á vegginn, Jiegar eg opnaði augun, en nú.sáust engin nýbrigði fyrst í stað.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.