Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1940, Page 14

Sameiningin - 01.03.1940, Page 14
44 “Sigurhetjan, Jesús minn.” Er eg verð hafinn frá jörðu mun eg draga alla iil mín. (Jóh. 12:13). í sönnustum skilningi var Jesús ávalt sigurvegari: hann glataði aldrei því góða; en fyrir skilningi manna verður þetta sérstaklega augljóst á páskunum. Þegar hann var negldur á krossinn mistu margir vina hans móðinn og héldu hann marinn sundur til eyðileggingar; en í upprisunni ljómar sigurvegarinn í guðlegum skrúða. Páskar fela í sér tVent: sigur og líf. Þetta tvent sameinast í eitt hugtak: sigur lífsins. í einkunnarorðunum hér að ofan er sigur opinberaður. Jesús staðhæfir sigur fyrir málefni sitt, og orðin, sem hann notar eru afar sterk. Þau eru töluð í sömu vikunni sem hann var krossfestur, og, þegar hann segir þau, er hann beint að hugsa um krossfestinguna. “Þegar eg verð harfinn frá jörðu,” segir hann. Guðspjallamaðurinn tekur það fram, að með þessum orðum hafi hann verið að gefa til kynna með hvaða dauðdaga hann myndi deyja. En brenni- punkturinn i þessu versi eru orðin: “mun eg draga alla til mín.” Hvernig sem menn skilja orðið “alla”, hvort heldur er átt við alla, sem trúa, eða alla á jörðunni, er það ótví- rætt, að hér er verið að lýsa aðdráttarafli frábærlega sterku, Iíklegast aðdráttarafli, sem sterkara er en alt annað á jörðu. Og þetta segir Jesris þegar hann er rétt kominn að því að ganga út í krossdauðann. Mannlegt hyggjuvit hlýtur að segja: hér er eitthvað óvanalegt, eða ólíklegt, eða óskiljan- legt á ferðum. Ekki var um þær mundir vænlegt með uppfylling þessara orða. Lærisveinar hans voru fáir og áhrifalitlir menn í mannfélaginu. Aðfaranótt föstudagsins í þessari viku sveik féhirðir lærisveinahópsins meistara sinn í hendur óvinum hans fyrir 30 silfurpeninga. Skömmu síðar, sömu nóttina, varð djarfasti og atkvæðamesti lærisveinninn hræddur við vinnukonu og sór þess dýran eið að hann ekki einu sinni þekti Jesúm, svo var það hættulegt j)á að veita honum hið minsta lið. Nærri allir hinna lærisveinanna flýðu. óvinirnir hrósuðu happi. Oft höfðu þeir áður verið i vandræðum með hann. Hann virtist hafa einhvern undramátt, sem þeir ekki skildu. Nú var hann á þeirra

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.