Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1940, Page 8

Sameiningin - 01.06.1940, Page 8
86 áí'ellisdóm þótt vér ekki samþykkjum kenninguna um yfir- náttúrlega fæðing Jesú, og ekki heldur þótt vér ekki fylgj- um gömium rétttrúnaði i sambandi við friðþæginguna. Nýmælabragurinn á þessu er hverjum, sem athugar, augljós. Eg efast um, að nokkurt lúterskt kirkjufélag í Vesturheimi myndi þannig segja frá guðdómi og friðþæg- ingu Jesú Krists. Fyrir oss, sem höfum alist upp kirkju- lega hér vestra, er þessi frásögn öðruvísi en sú, sem vér höfum talið rétta. Hvaða áhrif hefir svo þessi nýrri framsetning kristin- dómsins á þjóð vora? Er biskupinn eins og liður í þroska þess boðsltaps með þjóð vorri, þannig að þetta falli þeim vel í geð sem eru hikandi eða fjarlægir og þetta verði til þess að leiða þá nær helgidómi trúarinnar, og kristindómur þeirra verði æ ákveðnari? Eða bendir þetta á los við hinn gamla grundvöll, sem verður til þess að losið verður æ meira? Guð gefi sigur hinni fyrri þroskaleið. Eina umsögn biskupsins viðvíkjandi Frelsaranum lang- ar mig lil að benda á. Hún er þessi: “Drottinn Jesús Ivrist- ur, hinn mikli meistari, virðist hafa verið gjörsamlega ó- háður trúarsetningunum.” Ef átt er með trúarsetningum við skýringar fræðimannanna á Gamla Testamentinu, býst eg við að þetta sé rétt. Þarf í þessu sambandi ekki annað en vitna í fjallræðuna þar sem stendur nokkrum sinnum: “Þér hafið heyrt að sagt var . . . en eg segi yður.” Við það fræðikerfi var hann ekki reyrður höndum, en við grund- völlinn sjálfan, sem þessir roenn voru að reyna að skýra, var alt öðru máli að gegna. Vert er að athuga hvað hann segir um Gamla Testamentið sjálft: “Ætlið ekki að eg sé kominn til að niðurbrjóta lögmálið eða spámennina; eg er ekki kominn til þess að niðurbrjóta, heldur til þess að upp- fylla; því að sannlega segi eg yður: þangað til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða einn staf- krókur lögmálsins líða undir lok unz alt er komið fram (Matt. 5:17, 18.). Vel veit eg að, með þessu er kannast við þroska guðlegrar opinberunar og áframhald hennar; en mergurinn málsins er sá, að þetta er trúarsetning viðvíkj- andi guðlegum innblæstri Gamla Testamentisins. Biskupinn segir, að “margbreyttar leiðir” geti legið að hinu sanna altari trúarinnar. Hann segir frá manni, sem er gamalguðfræðingur í strangasta skilningi og svo frá öðr- um, sem er guðspekingur og frjálslyndið sjálft á hina nýjustu vísu, en báðir mennirnir eru með hjartað fult af

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.