Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1931, Page 8

Sameiningin - 01.07.1931, Page 8
198 þessu máli, heldur læra á allan hátt af sambandi og samfundum meÖ öðrum. Vakin athygli á lexíu-vali því hinu vandaÖa, er út verður gefiS í haust af United Lutheran Cliurch, og byrjar meS október. Einnig kom hér fram hve sterk ítök íslenzkan á enn í sunnudagaskólum vorum, og á þar eflaust hlut aS máli vaxandi skilningur á aS viShald íslenzks máls er hiklaus gróSi og menn- ingarauki, þó hvergi eigi þaS aS vekja andúS gegn enskunámi og þaS ekki heldur á sviði kristindómsins. Æskilegast aS ung- lingar vorir fái kristindómsfræÖslu á báSum málunum. — Séra Egill J. Eáfnis hafSi haft ungmennafélögin til meðferðar á liðnu ári, og skýrði frá stofnun þriggja nýrra félaga í hans sókn. AÖrir skýrðu frá starfi meSal hinna ungu, sem lofar miklu. Var séra Agli falið málið til meðferSar aftur, í von til þess, að nú fái hann einnig beitt áhrifum út á við auk starfsins í hans eigin presta- kalli. Sameiningin og GjörSabók verða gefin út á sama hátt og áður. Sömu ritstjórar og ráSsmaður. Fjárhagur Sameiningarinn- ar stóð afar illa, vegna lélegra innheimtu á áskriftagjöldum. Þarf þetta endilega að lagast á þessu ári og verSur gangskör að því gerð. Nokkur halli var einnig í heimatrúboðssjó'ði, ekki vegna þess að fé ekki kæmi inn nókkurnveginn eins og um var beðið, heldur vegna þess, að starfiS útheimti meira. Horfurnar fyrir næsta ár að hallinn jafnist. Séra Jóhann verður starfandi í Gimli-prestakalli næsta ár í tíu mánuði og styrkir kirkjufélagið það starf með $200.00. GuÖfræSisnemi Jóhann FriSriksson starf- ar í sumar umhverfis Manitobavatn í tvo mánuði og eru laun hans $75 um mánuÖinn auk kostnaðar. Ber framkvæmdarnefndin það traust til fólks þess, er hann starfar meðal, aS þaS meti svo aS kirkjufélagið hefir lagt því til jafn hæfan mann, að það standi straum af honum að mestu eða öllu. Ætlar hann sér að ljúka guðfræðisnámi við prestaskólann lúterska í Seattle á komandi vetri. Til orða hefir komið um tvo aðra íslenzka nemendur á þeim skóla næsta ár, hvað sem úr verður. Séra N. S. Thorláks- son bauðst til þess að heimsækja söfnuðina í Vatnabygðum í sum- ar endurgjaldslaust af hálfu kirkjufélagsins, ef það sæi honum fyrir fargjaldi. Var þetta sóma boð þegið meS þökkum. Einnig var skorað á söfnuði, er fastrar prestsþjónustu njóta, að ieyfa prestum sínum að heimsækja prestslausa söfnuði og sviS í krist- indómserindum. Er liklegt að þetta fái góðan byr og greiði úr vanda í bili, unz fleiri mönnum verður á að skipa og fjárhagur verður rýmri. Hallgrímssöfnuður í Seattle var styrktur á næsta ári með $200 láni úr kirkjufélagssjóði, er verður rentulaust í fimm ár. Áætlað var að safna $1,200 í þennan sjóð á næsta ári.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.