Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 15
205
Á ýmsan hátt er viÖ þaS leitast at5 koma kristinclóminum inn
í líf háskóla vorra. Hin kristilega stúclenta hreyfing og K.F.U.M.
(Y.M.C.A.) hafa myndaÖ félög i því augnamiði meÖal lærdóms-
manna í nokkrum hinna stærri háskóla. En þó sú viðleitni hafi
reynst fjölda stúdenta nytsöm, flytur hún ekki þrótt trúarlífs
kirkjunnar inn í starf háskólanna, og þorri nemenda lítur á þaÖ
starf sem utanskóla áhrif ætluð úrvali lærdómsmanna.
SíÖustu ár hafa háskólarnir í Chicago og Yale bygt í sam-
bandi viÖ skólana fagrar kirkjur aÖ dæmi margra hinna eldri
háskóla. Þeim kirkjum þjóna viðurkendir lærdómsmenn og
leiðtogar. En þó þetta starf sé hjálparmeÖal og hljóti að hafa
víðtæk áhrif til góðs, eru þessar kirkjur, kennimenn og starf
þeirra þó ekki samvaxið daglegu lífi stúdenta og geta því ein-
ungis veitt takmarkaða hjálp.
í hið minsta hefir ein kanadisk kirkjudeild fylgt þeirri
reglu, að stofna prestaskóla með heimili fyrir nemendur við
hvern háskóla landsins. Gefur þetta guðfræðinni sýnilegan þátt
í skipulagi skólans, en þó nær þetta einungis til nokkurs hluta af
nemendum þessarar kirkjucleildar.
Almennust er sú aðferð, einkum innan Bandaríkjanna, að
stofnsetja undirbúningsskóla og mentaskóla, er standa beinlínis
undir yfirráðum kirkjunnar. í þeim skólum er kristindómurinn
einn þáttur námsins, og það sem er enn þýðingarmeira, að alt
námið er snortið af lífsskoðun kirkjunnar, er um skólann annast.
Stór gagn er æskulýð skólanna unnið, ef valdir eru í kennara-
stöður góðir lærdómsmenn með einlæga kristna lífsskoðun, er ná
hylli og eignast kærleika nemendanna. Á þann hátt er ung-
dómurinn bezt studdur á hættuskeiði vaxtaráranna, er þekkingin
víkkar sjóndeildarhringinn, svo hvorki tapi hinir ungu heilbrigðri
kristindómsþekking né dimmi yfir barnatrú þeirra.
Stofnun, sem Jóns Bjarnasonar skóli, studdur með fé og
bænum hinnar miklu sögulegu kirkju, og sem þjónar og bætir úr
þekkingarlegri og kirkjulegri þörf þeirra, af grein hins fræga
kynstofns (íslendinga) er í Kanada dvelja, getur orSið til ómetan-
legrar blessunar fyrir framtíðar heill Kanada og heimsins, því
eg, sem er meðlimur annarar kirkjudeildar, ber samúðarfullan
áhuga fyrir hinu göfuga augnamiði skólans; kennarar virðast
uppfylla þau skilyrði sem nefnd eru að framan og verk skólans
verðskuldar það öndvegi, er hann skipar i hjörtum stuðnings-
manna sinna. —/. A. S.