Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 18
208
júlí 1930 yrði starfstími séra Carls J. Olson á enda hjá presta-
kalli hans í Vatnabygðum i Saskatchewan, nema eitthvað
skipaðist um. Erindrekar frá iþeim söfnuðum á kirkjuþing-
inu létu í ljós, að ekki mundi vonlaust að sameina krafta til
að halda séra Carli við þjónustu í bygðinni. út af þeim og
öðrum ummælum lofaðist forseti til að heimsækja bygðina,
o!g varð af því í júlímánuði. Flutti hann þar þrjár guðsþjón-
ustur og tvo fyrirlestra. Átti einnig fund með fulltrúum
safnaðanna. Kom þá í Ijós, að engin ráð voru til þess að festa
séra Carl í ibygðinni eða á annan hátt að tryggja henni þjón-
ustu í bili, nema hvað áhrærði að reyna að fá séra Valdimar
J. Eylands til að starfa þar einn mánuð að haustinu—október-
mánuð. Gerði hann það og var starf hans vel þegið, en kom
ekki að fullum notum fyrir óhagstæða tíð. í millitíð fór pen-
ingakreppan vaxandi, og það svo, að söfnuðurnir hafa ekki
treyst sér til neinna framkvæmda. Annars tel e!g líklegt, að
þeir hefðu sent séra Valdimar köllun. — í júlímánuði fór séra
Carl í bráðabirgðarnþjónustu hjá Central Lutheran Church í
Seattle, og var síðan kallaður þangað til fastrar þjónustu.
Flutti hann þangað alfarinn með fjölskyldu sína síðastl. haust.
Hefir þjónað þar síðan við ágætan orðstír. Er þannig horf-
inn úr kirkjufélagi voru mjög hæfur kennimaður, sem við
máttum illa við að missa. En eg veit, að það er oss öllum
gleðiefni, úr því að vér bárum ekki gæfu til að njóta hans 'góðu
krafta, að hann hefir hlotið svo virðulega stöðu og er vel
metinn. Árnum vér honum allra heilla og blessunar Drottins.
Þann 5. maí síðastl. andaðist að heimili sínu að Lundar
séra Hjörtur J. Leó, úr innvortis meinsemd, er tók að þjá hann
síðastl. sumar. Leitaði hann sér lækninga nær og fjær, en
alt reyndist árangurslaust. Er með honum fallinn einn mesti
hæfileika, lærdóms o!g mælskumaður meðal Vestur-íslendinga.
Hann var yfirburða kennari, atkvæðamikill og vinsæll prest-
ur, skáldmæltur vel og hinn fjölhæfasti í hvívetna. Að missa
hans við á bezta aldri, er ómetanlegt tjón kirkju vorri og
kristilegum málum. Er sár harmur kveðinn að ekkju hans,
frú Stefaníu, og ungum syni, söfnuðum hans og öllu venzla-
fólki. Vér minnumst vors ágæta, látna starfsbróður með
þakklátum hug til Guðs fyrir þau tuttugu og tvö ár, er félag
vort naut hans sem starfandi prests, og ástvina hans með
innilegri hluttekningu og fyrirbæn í þeirri sáru eldraun, sem
yfir þá hefir Igengið.
Eins og til stóð, lét séra Kristinn K. Ólafson af þjónustu
hjá söfnuðunum í Argyle um miðjan ágúst, og flutti búferlum
með fjölskyldu sinni til Seattle, Wash. Tók hann við þjón-
ustu hjá Hallgrímssöfnuði í byrjun september. Síðan um ný-
ár hefir hann einnig verið kennari við Pacific Theological