Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1931, Side 26

Sameiningin - 01.07.1931, Side 26
216 Nokkrar stuttar ræður voru fluttar milli söngvanna. Séra H. Sigmar skipaÖi forsæti. Aðsókn var afar mikil. Elkki voru veðurhorfur góðar á mánudagsmorguninn. Þykk- viðri grúfÖi yfir, og annar regndagur virtist í aðsigi. En sem betur fór rofaði til er fram á leið. Var nú komið saman um kl. ii f. h. til að ljúka því er fram átti að fara á laugardaginn. Var nú samkomustaðurinn í skógarlundinum á Grund, í nánd við samkomuhúsið “SkjaldbreiS.” Hafði þar verið gerður mikill viðbúnaður. Meðal annars hafði þar verið reistur bjálkakofi með torfþaki í sniði því sem tíðkaðist á frumbýlingsárunum, og var þar að líta mikið af menjum og áhöldum frá þeirri tíð. Var hann prýddur fjölda af myndum af elztu landnemum. Vakti þetta alt hina mestu athygli. F'rumherjar skipuðu heiðurssess þennan dag. Fyrst voru þeir, ásamt öðrum heiðursgestum, við sérstakt borðhald í hinum forna samkomusal “Skjaldbreið.” Prýddi þar borðið með öðru afmæliskaka með fimtíu kertum. Hlaut frú Arnbjörg Johnson það hlutverk að skera kökuna. Síðar skipuðu frumherjar sæti á ræðupallinum. Er fylking hinna fyrstu landnema mjög farin að þynnast, eins og von er til, en furðu unglegir voru margir þeir, er enn voru í hópnum. Mintu þeir vel á mannval það, er lagði grundvöll bygðarlífsins. Kl. i e. h. byrjaði hin vandaðasta skemtiskrá. Eúðraflokkur úr bygðinni, söngflokkur, ræðumenn og skáld skiftúst á að veita fjölbreytta skemtun. Séra Egill tilkynti að dr. B,. B. Jónsson stýrði þessum hluta hátíðahaldsins. Þessi voru minnin, er flutt voru: ‘“Minni frumherjanna,” dr. B. B. Jónsson; “Minni bygð- arinnar,” séra H. Sigmar; “Minni íslands,” séra K. K. Ólafson; “Minni Canada,” dr. J. Stefánsson; og auk þess fluttu ávörp tveir virðulegir gestir, Ivan Schulz, þingmaður þess kjördæmis á Mani- tobaþingi, er mestur hluti bygðarinnar tilheyrir, og mentamála- ráðherra Manitobafylkis, Hon. R. A. Hoey, er kom sem málsvari stjórnarinnar. Frumort kvæði voru lesin af séra J. A. Sigurðs- syni og séra Agli Fáfnis. Hr. E. P. Jónsson las minni bygðar- innar í ljóði eftir frú Jakobínu Johnson. Séra Egill las einnig frumort kvæði eftir Sigurð Jóhannsson. Hið eina sem spilti þessari ágætu skemtun voru nokkrir regnskúrir, er skullu á í miðjum ræðum, og gerðu erfitt fyrir. Urðu líka til þess að ekkert varð úr skrúðför og minna af íþróttum. En slíkt eru smámunir, þar sem alt var gert af slíkum myndarskap og hepnaðist svo vel. Mun það hafa verið einróma álit að hátíðin hafi verið að öllu leyti samboðin hinni fögru Argyle-sveit og sögu hennar, sem verið var að minnast. —K. K .6-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.