Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 31

Sameiningin - 01.07.1931, Blaðsíða 31
221 Tima dr. Knubels er skift þannig: Hann prédikar í 20 mín- útur; ver 20 mínútum til að svara spurningum, er ósýnilegir áheyr- endur senda honum til úrlausna, og 20 mínútum er varið til lof- söngva. Er þetta verðskulduS vi'Öurkenning á erindi því, er lútersk kirkja flytur hérlendu þjóðlífi. Sömuleiðis er það fágætur vegs- auki dr. Knubel er hann á fyllilega skilinn. Eins og sakir standa á fregn þessi erindi til vor íslendinga. —/. A. S. Úr gömlum dagbókum Eftir séra Sig. S. Christophersan II. Eg mintist á það við Friðrik, að augu hans væru vel fallin til þess að athuga orustur og orustuvelli. Hann svaraði brosandi að fleira væru orustuvellir en þau svæði, þar sem að lægju manna- bein, hvít og skinin. Féll hann þá í þungar hugsanir. Það var eins og augu hans litu inn í aðra heima. En eg byrjaði aS segja frá ömmu okkar, en nú er eg alt í einu farin að tala um Friðrik. Eg er farin að halda að það verði upphaf og endir á öllum mínum skrifum. Eriðrik hefir verið mér til þessa allur heimur, eða því sem næst. Skyldi það vera þess vegna, að hann er nú að fara frá mér. Það er kenning munk- anna, að við megum ekki elska neinn um of. Við fórum einu sinni að heimsækja Agnes frænku. Hún er eina móðursystirin, sem eg á, og er nunna í klaustrinu við Nimptschen. Eg var að dást að blómunum í klausturgarðinum; þá sagði hún við mig: “Else litla, viltu ekki koma og vera hjá mér og verða ein af systrunum, sæl og ánægð?” Eg spurði hvers systir eg ætti að verða. Eg sagðist vera systir hans Friðriks, og spurði hvort hann mætti koma með mér. Hún sagði að Friörik gæti gengið í klaustrið við Eisenach. Þá færi eg þangað með honum, sagði eg. Við erum systkin og eg ■\'il ekki fara neitt án þess að hann komi með mér. Agnes leit til mín kuldalega og sagði með alvöru og með- aumkun: “Vesalingurinn litli; hún líkist móður sinni, hún byrjar snemma á því, að gera menn að átrúnaðargoðum. Hún á eftir mikið að læra. Guð leyfir enga hjáguði.” Langt er síðan að þetta bar við; samt man eg það eins og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.