Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1931, Page 34

Sameiningin - 01.07.1931, Page 34
224 er snjóhvítt. Augun hennar dökk, en glansandi, full af fjöri. Yfirbragð ömmu minnir á hús, sem hefir j>ak hvítt af snjó, en er hlýtt innan veggja af glampandi arineldi. Friðrik segir, að það sé eins og hjarta hennar tilheyri sumr- inu, og vetur ellinnar fái aðeins náð til líkamans. Eg hygg, að sumar það, sem lykur sál hennar ömmu, sé nokkuð misveðrasamt, og bæði eldingar og heitir sólskinsdagar séu einkenni þess sumars. Priðrik heldur því fram, að við mun- um þekkja ömmu á upprisudeginum af augnaráðinu, þótt það verði ef til vil lítið eitt blíðara en nú er. Mér finst þetta óttaleg tilhugsun, og svo fjarlæg, að mér fellur illa að hugsa um þetta. Við þrætum stundum um það, hverjum dýrlingnum amma sé lík. Eg held hún líkist ()nnu, móðir Maríu meyjar. Friðrik segir hún sé lík Katrínu helgu frá Egiptalandi, því hann segir amma sé eins og drotning.—(Framh.). Dr. Natan Söderblom erkibiskup í Svíþjóð látinn Hér er einungis unt aS geta um fráfall þessa stórmennis. Hann andaðist sunnudaginn 12. júli síðastliðinn. Síðari árin kendi hann sjúkdóms er eigi var unt að ráða bót á. Óefað var Natan Söderblom einn hinn víðfrægasti lei'Stogi lúterskrar kirkju á þessari öld. Gáfur hafði hann þegið bæði frá- bærar og f jölhæfar. Á öllum heimsþingum lúterskra manna síðari árin, sópaði hvað mest að hinum andríka erkibiskupi Svía. Hann hafði prédikað, kent og stjórnað, og þótti fara alt jafnvel úr hendi. Viðförull var hann einnig og för hans til Ameríku fyrir nokk- urum árum var fræg sigurför. Efalaust er fráfall Söderldoms erkibiskups harmsefni öllum heimi, en þó einkum ættþjóð hans og kirkju. —/. A. S.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.