Sameiningin - 01.05.1933, Qupperneq 18
92
föðurorð, en ])að birti líka í bygð og hjörtum mannanna við
]>au. Og hvílík páskahátíð á vori eilífðarinnar, í Ijósi Guðs
við faðmlög ástvina vorra!
Hví ekki, íslenzku vinir, allir að komast nú út úr vetrar-
ríki kulda og eigingirni og efa, úr dauðanum, og opna í alvöru
hjörtun fyrir slíkri vordýrð upprisu og eilífs lífs?
—J. A. S.
(Þessi ræða var þegar stílsett til hirtingar í maí blaði
“Sam.” er hið sviplega fráfall höfundarins bar að. Er hún nú
birt að honum látnum, og verður þannig síðasta kveðjuorð
hans til kristinna íslendinga. Veit eg að þessu fagra erindi
verður fagnað mjög af vinum hins látna og kristindómsvinum
alment.—Iv. K. ó.)
Spurningar og svör
viðvíkjandi sambandi við UNITED LUTHERAN CHURCH 1N
AMERICA.
Eftirfylgjandi spurningar voru
sendar dr. Knubel, forseta U.L.C.A.
af forseta kirkjufélagsins íslenzka,
og hefir hann svarað þeim á þá leitS
er hér greinir:
i. Mundi íslenzka kirkjufélagið,
við að sameinast U.L.C.A., gefa upp
nokkuð af núverandi sjálfstæði sínu
hvað snertir notkun tungumála í
guðsþjónustu og starfi sínu eða
í því að nota sitt eigið guðs-
þjónustuform og kirkjusiði (mini-
sterial acts) ?
Svar: íslenAka kirkjufélagið
mundi ekki gefa upp neitt af núver-
andi sjálfstœði sínu hvað snertir
notkun tungumála í guðsþjónustum
og starfi sínu né h.vað snertir guðs-
þjónustuform og kirkjusiði. Á-
kveðnar skjalfestar samþyktir U.L
C.A. gefa tryggingu hvað þetta
snertir.
2. Hvaða sjóðir yrðu sameigin-
legir, ef kirkjufélagið gengi inn (í
U.L.C.A.), og hvaða sjóðir til-
heyrðu kirkjufélaginu sérstaklega og
væru undir yfirráðum þess?
Svar: Engir sjóðir yrðu sameig-
inleg eign U.L.C.A. og íslenzka
kirkjufélagsins. Islenzka kirkjufé-
lagið mundi gegnum féhirði sinn
framvísa til féhirðis U.L.C.A. öllum
tillögum til almennra velgjörðamála
kirkjunnar. (Þar í teldust tillög til
trúboðs, bæði erlends og heimafyrir,
og annara starfsmála U.L.C.A. —■
K. K. Ó.) íslenzka kirkjufélagið
héldi öllu fé er inn kæmi fyrir hið
sérstaka starf kirkjufélagsins. Hvað
áhrærir heimatrúboðsstarf þá mundi