Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1934, Síða 10

Sameiningin - 01.06.1934, Síða 10
88 lega skapa foreldrarnir tækifærin til að sýna þau. Alt á að vera skorðað og reglufast til aukinnar kvalar börnunum, sem koma eiga fram. Maður einn sagði frá því nýlega, að það hefði verið sín mesta kvöl, sem barn, að vera ætíð látinn af móður sinni segja fram eitthvað, sem hann kunni, ef að minsta kosti sex aðkomandi voru við. Loks varð það vani hans að gæta vel að gestakomu; þegar fjórir eða fimm voru komnir þaut hann út í fjós og faldi sig í heyhlöðunni. Eðlilega var hann að eignast fólksfælni. Þegar svipað er ástatt nu, mundu margir drengir og stúlkur kjósa að eiga völ á fjósinu og heyhlöðunni. Þau vilja fá að vera í friði. Þau vilja fá að bíða þar til fólk hefir fengið eðlilega að kynnast hæfileikum þeirra og biður þau í einlægni að sýna list sína. Foreldrar komast oft fram hjá þessari viðlcvæmni með því að segja kunningjum sínum “að biðja hann Nonna, við tækifæri, en ekki láta hann vita að eg hafi haft orð á því.” Virðist þessi krókaleik réttlát gagnvart barninu? Það getur líka gripið til einhvers, sem ekki er strangheiðarlegt til undan- færslu. Hver getur láð því það? Ef tækifæri til að sýna leikni barnanna og hæfileika þurfa að koma, ætlu þau að vera bæði eðlileg og óþvinguð. Og tilgangurinn ætti ekki að vera að sýna hvað barnið getur, heldur að gleðja aðra. Lítið ætti að segja um hæfileika barnsins er það þannig hefir komið fram, en tjá því aðdáun í einlægni fyrir því er það hefir lesið, sungið eða spilað. Það er sú uppörfun er hvert barn þarf til að halda áfram við- leitni sinni. Það verður að glæða hæfileika með því að vekja gleði- ríka tilfinningu hjá barninu fyrir því, sem það er að fást við. Þannig skapast löngun hjá barninu sjálfu. Á þvi grund- vallast öll framför þess. Án þess getur ekki um neina fram- för verið að ræða. Og foreldrar eiga að hafa meiri hug á þvi að börnin þroskist, en að hafa þau til sýnis. Einkennilega oft eru þeir kennarar valdir fyrir börnin, sem fljótastir eru til að koma börnunum á framfæri á “pró- grammi.” Það er oft kennarans eina aðferð að auglýsa sig. Til þess að koma nemendum sínum sem fljótast fyrir almenn- ingssjónir og áheyrn, verður hann að brjóta í bága við lög- mál þeirrar listar, er hann vill kenna. Hann getur elcki varið nægum tíma til þess að efla hjá nemendanum það sem hon- um ríður mest á. Það verður að leggja í sölurnar fyrir það, sem álitið er að hafi auglýsingargildi. En nemandi, sem ekki

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.