Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1934, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.06.1934, Qupperneq 12
90 af Postulasögunni, með þeirri ósk, að hún megi minna þá á að lesa ritningarkafla á hverjum degi; og býður þeim öllum að mæta með sér í einum kirkjusalnum á föstudagskvöldi þeirrar viku, ef þeir geti, til viðurkynningar og andlegs sam- neytis. Ávextirnir hafa verið miklir og dýrmætir, segir dr. Holl, Bréfastafli heilstór frá hlutaðeigendum ber vott um það. Bréf- ritarar tjá honum allir þakklæti með einlægum og hjartnæm- um orðum og lofast til að taka sinn þátt i bæna-prógramm- inu. Söfnuðurinn hefir vaxið. Góður og kristilegur andi ríkir í safnaðarlífinu. Kirkjan er hetur sótt en áður, og fleiri villjugar hendur vinna nú að safnaðarstarfinn. Blöðin segja frá öðrum presti, sem ekki var ánægður með ástandið í söfnuði sínum. Á síðastu páskum var þó kirkjan troðfull hjá honum. Þar var margt fólk saman komið sem ekki hafði stígið þar inn fyrir dyr í heilt ár eða meira. Á undan síðari blessun ávarpaði prestur söfnuðinn með þessum orðum: “Það gleður mig að sjá svona mikinn fjölda við messu í dag; en af því að eg veit, að eg fæ ekki að sjá margt af ykkur fyr en á næstu páskum—ef eg lifi—þá tek eg þetta tækifæri lil að óska ykkur gleðilegra jóla'”—Orðin voru líklega verðskulduð, en aðferð dr. Holls mun þó reynast lietur. “Afvopnunar”-þingið, sem sett var fyrir tveim árum í Genf á Svisslandi til að leita samkomulags um takmörkun vígbúnaðar, hefir littlu til leiðar komið enn, þrátt fyrir lang- vint og þreytandi málastapp. Fulltrúarnir áttu að mæta enn einu sinrri á þingfundi seint í maí. Fáir gjöra sér nú orðið háar vonir um nokkurn verulegan árangur af störfum þessa þings. Það er varla hugsanlegt að stórveldin fáist til að minka við sig hergögnin að nokkrum mun, nema þjóða- rígurinn geti farið minkandi um leið—en sá ófögnuður hefir sjaldan hreykt sér hærra en nú, síðan heimstríðinu lauk. Horfurnar því ekki sem glæsilegastar. Þó er friðarmálið ekki dottið úr sögunni fyrir j^essu. Friðarsinnar hafa látið heilmikið til sín taka á þessum síð- ustu vikum, sérstaklega hér í Vesturheimi. Hafa þeir lagt máleliiið fyrir almenning enn á ný með fundum og ræðuhöld- um og talað af heilmiklum eldmóði sumir. En fáum tókst þó eins vel að ná áheyrn almennings eins og kennimanninum fræga, dr. Harrv Emerson Fosdick, sem er þjónandi prestur í kirkju Rockefellers feðganna í New York. Á ófriðarárunum

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.