Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1934, Side 14

Sameiningin - 01.06.1934, Side 14
92 líður, þá bera undirtektirnar vott um sterka og ákveðna frið- arhreyfingu á vegum kirkjunnar. Og hugsjónin á sér enn þá marga örugga talsmenn á þjóðþingum og í stjórnarsölum hér í Ameríku og víðar, þrátt fyrir horfurnar. Það sýndi sig meðal annars í vetur seint, þegar öldungadeildin í Bandárikjaþinginu tók sig til og skip- aði nefnd úr sínum hópi til að rannsaka vopnaiðnaðinn og afstöðu hans alla í heimsmálunum. Nefndin tekur til starfs í sumar eftir þinglok. Líklega var sú samþykt nokkurs konar bergmál af umræðum almennings um þetta vígvéla- verzlunar-fargan. Það mál hefir valdið heilmiklu umtali um þvert og endilangt landið, síðan greinin birtist í tímaritinu Fortune, sú sem getið var um í Aprílblaði Sameiningarinnar. Að öllu samanlögðu hafa þá friðarmenn alls ekki mist sigurinn úr höndum sér, þótt þeir eigi vitanlega við ramman reip að draga. Sex mánuðir eru nvi liðnir síðan alþjóðar vínbann var lir gildi numið í Bandaríkjunum; en sex eða sjö mánuðum þar á undan hafði þjóðþingið samþykt lög, sem lýstu léttan bjór óáfengan og leyfðu sölu þess drykkjar um alt landið. Þessar breytingar áttu að verða til óskaplega mikillar bless- unar fyrir land og lýð, eftir spádómum afnámsmanna. Vín- skatturinn átti að fylla stjórnarfjárhyrzluna; vínsmyglar að hverfa úr sögunni; atvinna að aukast; lögbrjótar að missa móðinn; löghlýðni fólksins að fara dag-batnandi, og svo framvegis. En ekkert af þessu er enn farið að rætast, svo að séð verði. Bindindismenn hafa hvað eftir annað bent á ófögnuð ýmsan, sem vínhelgunin hefir nú í för með sér, eins og jafnan áður. En svo vilja víst margir taka það með af- föllum, sem þeir leiðindaseggir segja. En þegar þjóðþingið í Washington, æðstu embættismenn stjórnarinnar og jafnvel forseti sjálfur játa misfarirnar, þá ætti að mega gefa því ein- hvern gaum. Vinmálið kom til umræðu í öldungadeild þingsins fyrir skemstu; og gömlum þingmönnum, sem áður stóðu þar önd- verðir, kom nú ágætlega saman. Þeir hörmuðu allir vaxandi vínsmyglun og aðra óhæfu, sem aukist hefir í skjóli nýju vínlaganna. Cummins dómsmálaráðgjafi var viss um það, að smyglun hefði ekki minkað síðan liannið var afnumið. Hann vúdi víst ekki taka of djúpt í árinni. En Choate vín- mála-ráðunautur sagði að ástandið væri miklu verra en það hefði verið áður fyr, þegar löghelgaðar knæpur stóðu í mest- J

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.