Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1934, Page 16

Sameiningin - 01.06.1934, Page 16
94 Sameiningin árnar þessum iingu mönnum allrar hamingju og að þeir megi vinna sem þýðingarmest starf í kirkju Jesú Krists. Séra N. S. Thorláksson og frú hans ferðuðust að loknu kirkjuþingi í fyrra til Edmonton í heimsókn til Hálfdáns, sonar þeirra, er þá var þar búsettur. Hefir hann síðan flutt aftur til Winnipeg, en skipar áfram ábyrgðarmikla stöðu hjá Hudson Bay félaginu. Séra Steingrímur heimsótti tvívegis fslendingabygðina við Markerville meðan hann dvaldi í Al- berta og flutti þar guðsþjónustur. Seint í ágúst héldu þau hjónin áleiðis til Seattle, og dvöldu þar hjá Friðrik lækni, syni sínum, þar til seint í janúar í vetur. Þau heimsóttu einn- ig bróður frú Thorláksson í Tacoma. Þrátt fyrir það að séra Steingrímur gekk tvívegis undir uppskurð rneðan hann dvaldi í Seattle, prédikaði hann við allmörg tækifæri í Hallgríms- söfnuði og víðar. Þau hjón eiga í Seattle fjölda vina, eins og víðar, og var það öllum hið mesta gleðiefni hve ung þau eru enn í anda, og ern, þrátt fyrir þá læknishjálp, er hann þurfti að njóta og dvöl á spítala. Þau fóru frá Seattle áleiðis til dóttur sinnar í Suður Dakota, Var séra Steingrímur hinn frískasti er hann lagði upp í þá löngu ferð. Góðar fréttir hafa horist af þeim síðan. Páll G. Johson hefir nú lokið tveggja ára námi við lút- erska prestaskólann í Saskatoon. Hann hefir í vetur þjónað að nokkru leyti í austurhluta Vatnabygðanna samhliða nám- inu. “A vegum Indlands” (Framh.) Með þetta fyrir augum tók hann til starfa. Hann sagði tilheyrendunum frá Jesú Kristi. Gaf sig að vitnisburðinum, en reiddi sig ekki á eigið hyggjuvit. Söfnuðurinn var ensku- mælandi, sem hann hafði verið sendur til. Fyrst framan af voru það aðallega stéttleysingjar, sem sóttu trúboðssam- komur hans. Þó slæddust þangað nokkrir upplýstir menn, og hópur þeirra fór smásaman vaxandi. Indverjar eru vel gáfaðir og talsvert gefnir fyrir orðastælur; þeir hafa gaman af að spyrja trúboðann í þaula. Á einum fundinum ætluðu tveir Hindúar að koma honum i vandræði. Þeir kröfðust

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.