Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1934, Síða 17

Sameiningin - 01.06.1934, Síða 17
95 þess, að hann sýndi þeim einhvern stað í nýja testamentimi, þar sem Kristur segðist vera Guðs sonur. Stanley vissi, að þau ritningarorð voru til, en vers og kapítula mundi hann ekki í svipinn. Þá er eins og honum sé sagt að líta á opið nýja testamentið fyrir framan sig, og þar sér hann þennan vitnisburð frelsarans, ljósan og greinilegan, á alt öðrum stað en þeim, sem hann hafði verið að hugsa um! Innri röddin hafði enn sem fyr leiðbeint honum dásamlega. Jones hafði brátt fleira við að stríða. Hann lagðist veik- ur, í hitasótt þeirri, sem ásækir vestanmenn þar í landi. Hon- um batnaði þó aftur í bráðina, en heilsan var hiluð. Ilita- veikisköstin lögðu hann í rúmið hvað eftir annað. Honum var leyft að taka sér hvíld frá starfinu og ferðast heim til Ameríku; en þegar hann kom til Indlands aftur, sótti undir eins í sama horfið. Hann gat ekki fengið heilsuna aftur. Var þá rétt að honum komið að hætta við starfið—gefast upp. Leggur hann þessi vandræði fyrir Guð í bæn; tjáir sig enn sem fyr reiðubúinn að gjöra Guðs vilja. Þá er alt í einu eins og sagt sé við hann: “Þú skalt ekki kvíða neinu um heilsu- farið, eg mun sjá fyrir því!” Þá var þrautin unnin. Auðvit- að. Hvenær hafði þessi innri rödd brugðist honum? Heilsan var honum ekkert áhyggjuefni framar. Næsta morgun kendi hann sér ekki meins, og honum hafði aldrei liðið betur. Og síðan hefir honum aldrei orðið misdægurt. Það hefir aldrei þótt áhlaupsverk að fást við kristniboð á Indlandi. En um þær mundir, þegar Stanley Jones byrjaði starf sitt í Lucknow, voru erfiðleikarnir hálfu meiri en áður. Sjálfstæðisstefnan var að ryðja sér til rúms, og með henni magnaðist hatur þjóðarinnar á vestrænum yfirráðum og helzt öllu, sem vestrænt var talið. Væri minst á kristindóminn á samkomum Indverja, þá svaraði fólkið með óhljóðum. Ekki voru þó öll sund lokuð fyrir kristnum áhrifum, því að hugur þjóðarinnar var að breytast, einkum á meðal æskulýðsinsins. Menn voru farnir að hugsa og spyrja. Jafnvel þótt þeir könn- uðust ekki við að hin gamla hefði brugðist, þá vildu þeir gjarnan veita athygli sérhverju því, sem gæti gefið landi þeirra von um nýjan og betri dag. Hér var tækifærið, sem Stanley Jones bar gæfu til að nota. Þessir menn höfðu “vestræn trúarbrögð,” eða hin venjulegu fræði kirkjunnar; en þegar þeim var sagt frá Jesú Kristi sjálfum, þá hlustuðu þeir. En Jones var þangað kom- inn einmitt til þess að boða þeim Krist. Og orðið “kristin- dómur” er ekki til í nýja testamentinu. Var þá ekki lang- L

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.