Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 7
69 sæluríku samfélagi kærleikans. GleymiÖ mér ekki, vinir mín- ir, gerið þetta fyrir mig æfinlega, geriÖ þaÖ í mína minningu. MaÖur getur naumast skilið, hvernig því mannshjarta er fariö, sem ekki hlýnar við 'kvöldmáltíð Drottins og ekki finnur sælu og frið í þvi að minnast hans á þann hátt, minnast alls þess ástríkis, sem hann auðsýndi syndugum mönnum; þess góð- leika, sem einkendi hann; þess sára striðs, er hann háði; þeirra kvala, sem hann leið', er hann gerðist fórn fyrir alla menn. Sál- arfélag við Jesúm Krist í heilagri kvöldmáltíð er æðstur unaður trúaðra manna. Ekki svo að skilja, að þar sé um nokkurt töfra- meðal að ræða, eður kyngikraft þeirra jarðneskra hluta, sem þar eru handleiknir, heldur samfélag í anda við hann, sem á krossinum dó og nú er konungur allrar dýrðar. “Gjörið þetta í mína minningu.” Konungur kærleikans kveður. III. Konungurinn dcyr. Föstudagurinn langi. Hann var gripinn í Getsemane, dreginn fyrir Kaífas, dæmd- ur af Pílatusi, krossfestur á Golgata. Hann vildi ekki verjast, og bannaði öðrum að verja sig. Menn hafa dáð drengilega sjálfsvörn margra hetja. Hitt hafa færri skilið, að mestur drengskapur sé það, að verja sjálfan sig ekki. Til þess þarf yfirvenjulegt sálargöfgi, að vita sjálfan sig máttarmeiri en mótstöðumanninn, en líða honum þó að sigra sig. Kristur hafði máttinn, hefði hann viljað beita honum. Það vildi hann ekki. Heldur vildi hann verða undir, en sigra með valdi. Einstaka menn hafa lært þetta af Kristi. J>eir bregða ekki sverði móti sverði, ekki penna móti penna, til varnar sjálf- um sér. Það eru andans hreystimenn. Þeir vi-ta hvort sem er, að sannleikurinn og réttlætið og góður málstaður er á valdi æðri afla en þeirra, sem þeir sjálfir eða mótstöðumenn þeirra ráða yfir. Lífinu á þessari jörð verður það sæmdarauki að eilífu, hversu drengilega konungurinn Kristur varð við dauða sínum. Þar var hvorki ónáttúrleg harðneskja né kveifarskapur. Hann kendi svo sárt til, að hann gat ekki algjörlega varist kveinstöfum. Sárasta neyðaróp, sem upp hefir stigið af jörðinni, kom frá

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.