Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.03.1925, Blaðsíða 16
78 ið trúboðanum í góðar þarfir, eftir ástæðum, en oft og tíðum ferð- ast hann á tveimur jafn-fljótum. Það er eins og umferða-trúboðarnir kunni sér ekki hóf í áhug- anum. Eftir erviðan leiðangur á fílum yfir myrkviðar-flákann i Laos, létum við á laugardags-kvöld staðar numið, nokkrir ferða-' menn og eg, og hrópuðum sár-þreyttir: “Nú fáum við hvíld i heil ■ an sólarhring!” Næsta morgun sváfum við líka fram eftir; það er að segja, gestirnir í hópnum, en ekki trúboðarnir, því að þeir vörðu heilli klukkustund fyrir morgunverðartíma til viðtals við fólk- ið í næsta þorpi, útbýttu þar smáritum, og boðuðu til guðsþjónustu við tjöldin okkar klukkan tíu. Það voru áhrifamikil guðræknis- stund — undir víðlimuðu óó-tré; forvitin apa-smetti gægðust í gegn um villikjarið; filarnir kroppuðu ofan af bambus-reyrnum að baki okkar, en fyrir framan okkur sat fólkið undrandi, á meðan annar trúboðinn sagði þeim söguna ódauðlegu um frelsandi kærleika Guðs. En hinn kristniboðinn, Daniel McGilvary, var þar ekki. Hann hafði farið fótgangandi til næsta þorps, þrjár mílur, í brenn- andi sólarhitanum — þótt hann hefði fjóra um sjötugt — og var að boða trúna þar. “Ef þeir hvíla sig svona, kristniboðarnir,” sögðum við “hvað gjöra þeir þá, þegar þeir vinna?” Þetta er að eins eitt dæmi um trúmenskuna, sem við sáum fyrir okkur alstaðar. Jafnvel þeir trúboðar, sem ráðnir eru til kenslu eða lækningastarfs, taka iðulega þátt í ferðalögum út um landið. Trúboðslæknir ! Afríku gjörði víst aldrei betra vik fyrir meistara sinn, heldur en í för þeirri, sem hann skrifaði mér um á þessa leið: “Eg kom í síðustu viku heim aftur úr seytján daga ferðalagi um f/ía»t-héraðið.' Rigningatíðin var í algleymingi. Allar ár f. vexti; fenin óskapleg yfirferðar. Nærri því daglega þurfti eg að vaða vatnið í mitti, klukkutímum saman stundum. Eg lagði leið tnína oftast yfir þau héruð, þar sem við höfðum ekki náð í skóla- drengi áður, af því að fólkið hikaði við að senda börnin sín svo langt í burtu með hvítum mönnum, sem það vissi lítil deili á. Þeg- ar eg fór af stað, þá einsetti eg mér, ekki að eins að boða fagnað- arerindið, heldur að koma heim með fáeina drengi fyrir skólann okkar. Eg vissi, að ef eg að eins gæti náð í nokkra til að byrja með, þá yrði enginn hörgull á drengjum þaðan framvegis. Drott- inn bænheyrði mig. Þegar við lögðum heimleiðis yfir vötn og merkur, þá hafði eg með mér sjötíu skólapilta. Sú langa lest af börnum, svo fáfróðum og þurfandi, svo 'fótsárum og þreyttum, á leiðinni burt frá heimkynnum syndar og myrkurs, áleiðis til Ijóss- ins hjá frelsaranum, sem dó fyrir þá — það var sjón, sem komið hefði steinhjarta til að vikna. Stundum, þegar einhver móðirin skildist við barnið sitt, þá fylgdist hún með okkur mílum saman, tók að síðustu um hendina á mér og sagði með tárin í augunum: ‘Herra læknir, hann er eina, barnið, sem eg á, þú gætir hans vel — viltu gjöra það fyrir mig?’ Mánneðlið er alstaðar sjálfu sér líkt.”’ Þá er uppfrœðsln-starfifi. Þetta er líklega sá þátturinn í

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.