Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1925, Síða 15

Sameiningin - 01.03.1925, Síða 15
77 þýSa og prenta bækur, smárit og lærdómskver; fagnaSarerindiS verður hann aS bera svo fram, að þaö snerti daglegt mannlífiS I hvívetna; þeim mönnum, sem taka trú, þarf hann aS hjálpa til aS koma sér fyrir í nýjum umheimi. í sumum löndum verSur trúboS- inn aS kenna mönnum klæSagjörS, húsasmíSi og akuryrkju; en konan hans þarf aS veita kvenfólkinu tilsögn í hannyrSum, mat- reiSslu, réttri meSferS á börnum og sæmilegu húshaldi. ÞaS er því varla gífuryrSi, þó talaS sé um “trúboSann viS vinnu sina.” Þeir menn, sem ímynda sér, aS trúboSinn “hafi þaS náSugt,” vita mjög lítiS um erviSiS, þungt og hvíldarlaust, sem fylgir trúboSsstöSunni. KristniboSar mega teljast meS mestu ann- ríkismönnum í heiminum. Og mestur hluti þess verks, er unninn í óheilnæmu loftslagi viS örSug og þreytandi kjör. Á venjulegum trúboSs-spitala er oftast nóg verkefni handa þremur eSa fjórum læknum, en trúboSslæknirinn er ekki nema einn, og hann þarf aS gjöra alla uppskurSi sjálfur, og sinna öllum sjúklingunum, og hefir engan til aSstoSar nema einn eSa tvo innfædda viSvaninga. Skól- ar, sem hér í landi hefSu sex eSa fleiri kennurum á aS skipa, hafa þar ekki nema einn eSa tvo. KristniboSinn er oft og tíSum svo settur, aS hann þarf aS ganga í öllu, og vera þó stjórnsamur og virSulegur eins og erkibiskup. Venjulega kristniboSsstarfsemi má greina sundur í fjóra þætti- Allir eru þeir aS vísu samtvinnaSir en til skilningsauka er hentug- ast aS lýsa hverjum þeirra út af fyrir sig. Fyrst er útbreiffsla fagnaffarerindisins. Erindi kristindómsins er fyrst og fremst fagnaSarboSskapur, gleSifrétt. TrúboSsstarf- inu væri ranglega lýst, ef sagt væri, skýringalaust, aS ein deildin fjallaSi um boSun trúarinnar; því aS andi og stefna þess boSskap- ar ræSur þar jafnt í þeim öllum. En þó er einn mikilvægur hluti starfsins i sérstökum skilningi helgaSur útbreiSslu kristinnar trú- ar. Vöxt þeirrar greinar má marka af því, aS í heiSnum löndum eru nú 25,514 kristnir söfnuSir formlega myndaSir og auk þess fjölda margir hópar án félagsskipunuar. Tala fuIlorSinna meS- lima nemur 2,354,860, en kristilegrar uppfræSslu njóta 2,662,146 innritaSir nemendur, börn og fullorSnir. Mikil rækt er lögS viS hreina og beina prédikun orSsins, eSli- lega. Þeim kirkjum fjölgar nú óSum, sem stólræSur eru fluttar í á tilteknum tímum. Þó eru aSrar aSferSir, sem minna sópar aS, en bera meiri árangur, aSallega notaSar viS boSun trúarinnar. Er- indi frelsarans er flutt í litilmótlegum stræta-kapellum, í þrönginnl á kauptorgunum, í afskektum kvennaskálum, eSa frá húsi til húss, eSa í leiSangrum út um landsbygSirnar. Oft eru trúboSarnir mán- uSum saman á ferSalagi, koma viS í hundruöum, smáþorpa, og nota alls konar flutningstæki, svo sem fíla, úlfalda, hesta, asna, múla, eintrjánings-báta, lystisnekkjur; seglskútur, ihúsfleka, ihjólböruii, ökustóla, uxakerrur, reiShjóI og járnbrautarvagna; svo og bif- reiSir og mótorhjól, sem nú fer fjölgandi. Öll þessi tæki geta kom-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.