Sameiningin - 01.03.1925, Síða 31
93
Nýlátinn er i Winnipeg þýzk-lúterski presturinn séra L. F.
Tank, formaöur Canada-deildar Ohio-sýnódunnar lútersku, merk-
ur maSur og ágætur kirkju-höfSingi, hálf-fimtugur að aldri. Dó
úr lungnabólgu. Jaröarför hans fór fram 7. marz aS viSstöddu
miklu fjölmenni. Fylgdu likinu 20'—30 prestar, flestir i embættis-
skrúSa. Tvær likræSur voru fluttar, önnur á þýzku, hin á ensku.
ÞriSji ræSumaSur var Björn B. Jónsson, er kjörinn hafSi veriS
til aS bera fram kveSju-orS frá lúterskum prestum landsins.. Mörg
simskeyti voru lesin, og var eitt frá forsætis-ráSherra King í
Ottawa.
SkólaráS Jóns Bjarnasonar skóla hélt fund í Winnipeg 23. þ.
m., og stjórnarráS kirkjufélagsins átti f.und meS sér næsta dag á
sama staS. Forseti kirkjufél., séra K. K. Ólafsson, var nýkominn
úr ferSalagi vestur aS Kyrrahafi, og sat báSa fundina. Skrifari
kirkjufélagsins, séra FriSrik Hallgrimsson, hfeir afhent embættiS
varaskrifara, séra SigurSi Ólafssyni. Séra F. H. gerir ráS fyrir
aS leggja á staS til íslands laust ef.tir miSjan apríl.
Þann tíma, sem forseti kirkjufél. dvaldi í Seattle, bættust 50—
60 fullorSnir menn í söfnuSinn þar, — Hallgríms-söfnuS. Hefir
söfnuSurinn samiS viS ungan guSfræSa-nema, hr. Kolbein Sæ-
mundsson, um þjónustu fyrst um sinn.
Aumingja presturinn.
TímaritiS The Churchman, flytur þessa smágrein eftir bla&i
suSur í Texas.
ÞaS er ekki einleikiS meS prestinn. Sé hann gráhærSur, þá er
hann of-gamall; en sé hann ungur, þá skortir hann þekkingu. Sé
hann faSir tíu barna, er fjölskyldan of-stór; en séu engin börn, þá
gefur presturinn ekki gott eftirdæmi Syngi konan hans í söng-
flokknum, þá er hún þar til aS sýnast; en geri hún þaS ekki, þá
lætur hún sig engu varSa starf manns sins Flytji presutrinn ræSur
sínar af blöSum, þá er hann 'leiSinlegur; en prédiki hann blaSalaust,
þá er þaS léttmeti Haldi hann sig heima í skrifstofu sinni, þá er
hann ómannblendinn; en sjáist hann úti á stræti, væri honum nær
aS sitja heima og hugsa um ræSuna sína. Heimsæki hann fátæk-
linga, þá er hann aS sýnast fyrir mönnum; en komi hann á heimili
hinna ríku, þá er hann höfSingja-sleikja. HvaS sem hann gerir,
þá hefSi hann átt aS gera annaS, eins og allir vita.