Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1925, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.07.1925, Blaðsíða 4
194 ganga inn eftir dálitlum dal. Þar nemur allur lý8ur staðar. Hæðir eru til beggja handa. Móse velur menn úr hópi sex kyn- kvísla og lætur þá standa uppi á annari hæðinni, Garísím; og jafnmarga menn velur hann úr hópi hinna kynkvíslanna sex og setur þá upp á hina hæðina, Ebal. Nú er lesið lögmál Drottins í áheyrn lýðsins. Og er farið er með boðorðin, hrópa þeir, sem eru á Garísím-hæSinni, blessun yfir alla þá, sem boðorðinu hlýða, og alt fólkið tekur undir og segir “amen”; á hinn bóginn hrópa þeir, sem standa á Bbal-hæðinni, bölvun yfir hvern þann, sem boðorðið brýtur, og lýðurinn tekur einnig undir það og svarar “amen”. Svo endar guðsþjónustan með Svanasöng Móse, og frá guðsþjónustunni tekur lýðurinn sig upp, lætur bera fyrir sér sáttmálsörk Drottins, og heldur vestur í landnám sitt. hinum megin við Jórdan, og reisir þar minnismerki sín og ölturu. Á þessu ári eru liðin fimtíu ár síðan íslenzkir innflytjendur stofnuðu nýlendur þær í Vesturheimi, sem staðið hafa til þessa dags. Bygðir íslendinga í Winnipeg, Nýja íslandi og Minn- esota eiga fimtugsafmæli á þessu sumri. Þann 4. júlí 1875 kom fyrsti landneminn til nýlendunnar í Minnesota; 16. s. m. stigu íslenzkir menn fyrst fæti niður þar sem nú er Winnipegjborg; nokkrum dögum síðar komu landkönnunarmennirnir til Nýja íslands og í október-mánuði settist þar að hinn fyrsti hópur ís- lenzkra landnema í Manitoba. Að sjálfsögðu verður viðburði þessum reist minnismerki og minningarhátíðir haldnar. Á “ís- lendingadeginum” í gær vorum við mint á sögulegan viðburð þenna og margt þarflegt orð var til okkar talað og við vorum á- mint um það, að reynast trú bæði fortíð vorri og framtíð. Verð- ur 50-ára landnáms-afmælisins óefað minst enn þá meir áður lýkur. En þar sem við erum hér saman komin í Guðs húsi í dag, 2. ágúst, leitar hugur okkar einu ári lengra aftur í tímann. Við erum stödd á afmælisdegi — hinum 51. afmælisdegi — hins fyrsta altaris, sem reist var af íslenzkri þjóð í landi hér. Eg fæ ekki betur séð, en að viðburði þeim svipi undursamlega til sögu- brotsins, sem vikið var að í textanum, þá ísraelsmenn helguðu sig til landnámsins með guðsþjónustunni miklu fyrir austan Jórdan, áður en komiS var þangað, sem aðal-landnámið átti að vera. 2. dag ágúst-mánaðar 1874, á þúsund ára landnáms-afmæli Islendinga á ættjörð vorri, héldu íslendingar opinbera guðsþjón-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.