Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1925, Page 5

Sameiningin - 01.07.1925, Page 5
195 ustu í Ameríku hiÖ fyrsta sinn. Það var í borginni Milwaukee, þar sem íslenzkir innflytjendur áttu stundar-dvöl áður þeir komu að aðal-landnánri sínu, líkt og Hebrear viö Jórdan forÖum. Og óvíst er, aÖ hjartnæmari og hátíÖlegri guÖsþjónusta hafi nokkru sinni haldin veriö hjá íslenzku fólki í landi hér, heldur en þessi guðsþjónusta litla innflytjenda-hópsins islenzka í kirkjunni í Milwaukee, sem frændur þeirra, NorÖmenn, léðu þeim. Þá steig í stólinn fyrsta sinn í Vesturheimi íslenzkur prestur, og boðaði fagnaöarerindi Krists. íslenzkir sálmar hljómuðu í fyrsta sinn á helgum stað og sameiginlegar bænir stigu frá íslenzkum sálum i hæðirnar til almáttugs Guðs. Ræðutextinn var úr go. Sálminum í ritningunni: “Drottinn, þu hefir verið oss athvarf frá kyni til kyns.” Prédikarinn var sá maðurinn, sem Guð gaf þjóðflokki vorum að leiðtoga, og var það íslenzkum landnem- um hér sem Móse var ísraelsmönnum. Nafn hans nefnum við æ með lotningu og blessum minningu hans. Það var hann — Jón Bjarnason—, sem þar reisti í Drottins nafni altarið fyrsta sinn. Um það altari söfnumst viö enn i anda í dag og biðjum: “Gefðu að móöurmáið mitt, minn Jesú, þess eg beiíSi, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér til heiðurs þér, helzt mun það blessun valda, meöan þín náð lætur vort láð lýði og bygðum halda.” Eg get ekki annað en trúað því, að atburður þessi hafi ver- ið, sé nú og verði ávalt guðdómleg vísbending til allra manna, sem af íslenzkum ættum eru í landi hér. Með guðsþjónustu þeirri, sem nú minnumst við, var altari Drottins reist. Það andlega minnismerki er reist á undan öllum öðrum minnismerkj- um. Guðsríkið kemur á undan öllu öðru i sögu okkar Vestur- íslendinga. Þjóðin er helguð til landnámsins við altari Drott- ins. Og það er sem ennþá kveði við þaðan bæði blessun og bölvun, eins og frá Garísím og Ebal, — blessun almáttugs Guðs yfir oss og niðja vora hér í landinu, ef við göngum á Guðs veg- um, en bölvun, ef við víkjum af vegum Guðs. Yfir oss hefir hvílt bæði blessun og bölvun. Guð hefir blessað oss í þessu landi margvíslega, jafnvel fram yfir beztu vonir landnemanna, að mörgu leyti; en sjálfir höfum við tíðum leitt yfir oss bölvun

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.