Sameiningin - 01.07.1925, Page 9
199
hann steig aftur niÖur af pallinum má segja, a8 'hann væri þjóÖ •
frægur orðinn. Nokkrum klukkustundum siðar var hann kjör--
inn forsetaefni Democrata. RæÖa sú, er Bryan flutti þetta sinn,
var sem elding úr skýjunum, og hún kveikti bál í brjóstum
miljóna samborgara hans. Voru niðurlagsorÖin á þessa leiS:
“Óhæfu þessa skalt þú ekki aðhafast; þyrnikórónu skalt þú
ekki þrýsta á enni erviöismannsins; á gullkrossi skalt þú ekki
krossfesta mannkynið.”
Auknefni átti Bryan og var nefndur “Alþýðumaðurinn
mikli” (The Great Commoner). BlaS gaf hann út í Lincoln,
Nebr., og hét það “Alþýðumaðurinn”. Voru áhrif þess blaðs
á alþýðuna í Ameríku nær takmarkalaus.
Margir telja Bryan málsnjallastan mann í Ameríku á síð-
asta mannsaldri. Sá er ritár línur þessar, hefir þrisvar sinnum
notið þeirrar gleði að hlusta á ræður Bryans og gleymir ekki
prúðmensku hans, orðsnild né eldmóði.
Eitt sinn að eins átti eg tal við Bryan. Vissi hann, að eg
var Islendingur og spurði hann mig um landa mína. Ekkert
fanst mér hann vita um íslendinga annað en það, aö nokkur hóp-
ur þeirra byggi í N.-Dakota og stundaði þar sauðfjárrækt.
Ekki var Bryan í rauninni lærdómsmaður, þó ótal nafnbæt-
ur hefði hann þegið af háskólum heima og erlendis. En hann
var maður réttlátur og sannur ísraelíti, sem engin svik voru í.
Margir líta öðrum augum á málefnin en Bryan, en allir
munu heiðra minningu hins réttláta manns.
—B. B. J.
Apakattar-málin í Tennessee.
í þorpi því, er Dayton heitir, í ríkinu Tennessee, hafa und-
anfarnar nokkurar vikur staðið málaferli, sem svo eru undar-
leg, að heimur allur hefir horft á steinhissa. Tennessee er eitt af
suður-ríkjum Bandaríkja, og má því ekki gleyma, er rætt er um
þetta undursamlega mál. Þau ríki sum eru að öllu leyti langa
vegu á eftir öðrum ríkjum hins mikla lands. Evrópu-blöð og
margir menn henda gaman að Bandaríkjum í heilu lagi fyrir
atvik þetta í Tennessee, og sumir tala um það sem sýnishorn
þess, hve fáfræðin sé mikil og ófrelsið í Bandaríkjum. Er það
hin mesta ósanngirni. Ekki verður sú þjóð lítilsvirt fyrir fá-