Sameiningin - 01.07.1925, Blaðsíða 11
201
Canada kirkjan sameinaða.
1 kirkjusögu samtíÖarinnar hefir enginn atburÖur gerst
merkilegri, en samruni aðal-kirkjuflokkanna þriggja í Canada og
stofnun Canada 'kirkjunnar sameinuÖu þUnited Church of Can-
ada). AÖ sönnu skarst nokkur hluti (alt a8 því þriðjungur)
einnar deildarinnar (Tresbýtera) úr leik. Kennir þar lyndis-
einkenna Skota, sem líkjast okkur íslendingum í því, sem mörgu
öðru, að þeir eiga bágt með að beygja sig.
Lengi haföi sameiningin verið í aðsigi. Það hafði smátt og
smátt horfið sjálfkrafa, sem áður aðgreindi þessar kirkjudeildir.
Leiðtogar unnu saman og kennimenn skiftust á verkum. Leik-
menn ’kunnu ekki lengur að greina Westminster-kverið frá Heid-
elberg-fræðum. Þræturnar gömlu voru flestum gleymdar..
Játningarritin fornu lágu ónotuð. En kappkostað var að flytja
boðskap Jesú Krists beint frá honum sjálfum til samtíðarinnar.
Þegar svo stefnur voru haldnar til að ræða grundvöll trúarinn-
ar, kom í ljós aS ágreiningur var næsta lítill. Brosleg atvik komu
stundum fyrir á þeim samtalsfundum í tilefni af því, hvernig
það vafðist stundum fyrir lærðum mönnum, hvort þessi eður hin
trúfræöa-skilgreiningin væri af einu kirkjulegu sauðahúsi eða
öðru, svo stundum urðu Meþodistar óvart Presbýterar, eða
Presbýterar Kongregationalistar. En einna mest knúði það
kirkjuflokkana til sameiningar, að þrefaldur tilkostnaður við
kirkjustarfiS á hverjum staö, þótti óþolandi orðinn, og flest-
ir vildu heldur fá eina myndarlega kirkju og sameinast um hana,
en að halda við þremur kirkjukrilum á sama stað.
Hvað sem öðru liÖur, geta menn ekki annað en dáðst að
þeim anda kirkjulegrar göfugmensku, sem einkendi leiötogana,
er stofnuð var hin nýja kirkja. Eins og gefur að skilja, hefir
þaS ekki að vera vandalaust að semja nýtt skipulag og kjósa menn
til forystu svo ekki fyndist neinum flokki sér eða sínum leið-
togum misboðiö. En það er að sjá, sem allir hafi leiðtogarnir
veriö fúsir að gleymast og hverfa sjálfir, en haft heill heildar-
innar eina fyrir augum. Hefir þar öll kristni fengið gott eftir-
dæmi. Formaður nýju kirkjunnar var kosinn dr. Pidgeon í
Toronto. Er hann bróðir dr. E. Leslie Pidgeon, sem lengi hef-
ir verið prestur í Winnipeg, en nú er á förum þaöan.
A8 sjálfsögðu óska kristnir menn í öörum kirkjudeildum i
Canada Sameinuðu kirkjunni í Canada góðs gengis.
, —B. B. J.