Sameiningin - 01.07.1925, Page 21
211
Nú koma til greina fjórar staðhæfingar í sambandi viö fjall-
brattann:
1. “Svo áfram þá hiö þyrnum stráöa skeiö, er þú gekst fyrst.”
2. “Vér veröurn aö leggja þetta mál undir atkvæöi fjöldans.”
3. “Ekkert mál fær staöist til lengdar, sem ekki hefir samþykki
hans.”
4. Að þekkja sálar-einkenni íslendingsins er skilyrði þess, að
nokkurt mál fái framgang meðal þeirra.
Svo eg byrji á hinu síðasta, skal þaö tekið fram, aö sáðmaður-
inn þarf að þekkja jarðveginn, sem hann sáir í, alveg eins og sjó-
maðurinn þarf aö haga seglum eftir vindi, til þess aö kornast Ieiðar
sinnar. Öll sigursæl málefni hafa gjört þetta; en, ef með þessu er
átt viði þaö, að leiðtogarnir læri að þekkja veikleikana, aö eins til
að slaka til viö þá, þá má það til sanns vegar færast; en
á hvern hátt skal þetta gjört? Með því að segja: “Fjöldi minn, eg
er nú hér meö dálítið mál á prjónunum. Eg skai segja þér kosti
og lesti og greiddu svo atkvæöi með því, hvort þú vilt aðhyllast þetta
eöa ekki. Ef þú vilt það, gott og vel; ef þú vilt það ekki, gott
og vel.”
Eg spyr:
Lagöi kristindómurinn löndin undir sig á þennan hátt? Hafið
þér nokkurn tíma heyrt getið um eina einustu umbótahreyfingu, sem
komst áfram meö svona lagaðri hálfvelgju? Þurfti Lúter að fá
atkvæði fjöldans til aö vita, hvort hann mætti prédika réttlætingu
af trúnni ? Þurfti Þorvaldur viðförli að leita atkvæða fjöldans á
íslandi, áður en hann dirfðist að mæla eitt orð með kristinni trú á
landinu? Leitaði Oddur Gottskálksson atkvæða fjöldans, áður en
hann dirfðist að þýða nýja testamentið á íslenzka tungu og láta
prenta það ?
“Varðar mest til allra orða
undirstaðan rétt sé fundin” ('Lilja.ý
Undirstaðan er sannfæring.
“Hvað er fjöldans hróp og hrós
við hlið á sannleik beinurn?”
Sannfæring um sannleikann rak Lúter út úr munkaklefanum,
var orkulindin í sálu Jóns Sigurðssonar, var eldurinn í hjarta Jóns
biskups Ögmundssonar, var aflið í umbótabaráttu Skúla Magnús-
sonar.
Leiðtogi í umbótastarfi er óhugsanlegur, ef hann ekki hefir
sannfæringu. Getur hann beðið um fylgi við núll ?
Sá maður, sem eignast sannfæringu, leitast við að láta sem
flesta aðra eignast hana. Hann leitar atkvæða fjöldans með því að
fá sem flesta á sitt mál.