Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1925, Side 25

Sameiningin - 01.07.1925, Side 25
215 hópinn lúterska kirkj»n, sem eg sendi þér mynd af; er hún hiS myndarlegasta hús og rúmast þar 500 manns. Var hún vígö fyrir skömmu meö mestu viöhöfn aö viöstöddu fjölmenni. Jæja, vinur ! Þú veröur nú þreyttur á að lesa meira af þessu tægi. Eg legg hér með þýðingu af smákafla úr Papini’s “Life of Christ.” Hefi verið aö lesa það nýverið og finst mikiö í variö. Mynd meistarans hefir eigi óglöggvast í huga mínum við þann lest- ur. Einnig sendi eg smákvæði. Earðu með þau og greinina, sem þér sýnist.—Berðu konu þinni og hinum mörgu vinum mínum. í söfn- uði þínum beztu kveðju. Með kærri kveðju og beztu óskum, þinn einlægur, Richard Beck. “Sælir eru fátækir,” fHugleiðing þessi er lausleg og stytt þýðing af kafla úr hinni frægu bók ítalska skáldsins Giovanni Papini: Líf Krists, sem svo mikið hefir verið rætt um og feikna útbreiðslu hlotið.) Jesús sat á lágri hæð, meðal hinna fyrstu lærisveina sinna, um- kringdur hundruðum augna, sem á hann störðu. Einhver í hópnum spurði hann, hver verða mundi erfingi þess himnaríkis, sem meist- arinn hafði svo oft rætt um. Jesús svaraði honum með fitllsælu- kenningunum níu í fjallræðunni. Þessar fulltsælu-yfirlýsingar, sem svo oft eru hafðar yfir, eru nærri því ætíð misskildar, lemstraðar, rýrðar og rangfærðar, og þó eru þær söguágrip fyrsta dags Krists kenninga, þess dýrlega dags. “Sælir eru fátækir í anda, því að þeirra er himnaríki”. Lúkas guðspjallamaður sleppir orðunum ‘1 anda”, og virðist því eiga við þá, sem fátækir eru og ekkert annað. Margir þeirra, sem eftir hann hafa komið, hafa skilið orð hans svo, að hann ætti við þá einföldu— heimsku. 1 ummælum þessum sjá þeir einungis val á milli öreigans og fábjánans. Þá er Kristur mælti þessi orð, hafði hann hvorki hinn fyr- eða síðarnefnda í huga. Hann var eigi tengdur hinum ríku neinum yin- áttu-böndum, og hann fyrirleit af öllu hjarta sínu auðæfagræðgina, sem er örðugasti hjallinn á vegi sannrar sálar-auðgunar. Jesús var vinur hinna fátæku og huggaði þá, af því að þeir voru öðrum hugg- unar-snauðari; hann hafði þá nálægt sér, af því þeir þörfnuðust fremur svölunar ástúðlegra orða. Hins vegar var hann eigi svo fá- vís, að hann ætlaði að það eitt: að vera fátækur, í veraldlegri merk-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.