Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1926, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.03.1926, Blaðsíða 4
66 Til fróðleiks má hér fara nokkrum orÖum um suma þá andlegu höföingja, sem. hér eiga hlut að: máli. ÆSsta yfirvald GySinga var höfuöpresturinn. Var hann skipaSur af rómversku stjórninni og var sem milliliSur hennar og kirkjustjórnarinnar gyÖinglegu. Honum einum var ætlað aS bera upp mál GyÖinga vi?S rómvers'ku yfirvöldin. Sá maÖur, sem nú skipaði embætti það, hét Jósef Káífas og hafSi þegiö æðsta- prests tign af Valeríusi Gratus, forvera Pílatusar. En sá maður, sem að öllu leyti nema nafninu einu hafÖi mest ráð, var Hannas ('AnanusJ, maður slægvitur og ráSkænn me8 afbrigöum. Án hans ráöa var ekkert aShafst, það er miklu máli skifti. Sjálfur hafÖi hann um eitt skeiS gegnt æÖstaprests-embætti. en geröist nú gamall og hafSi Iátið embættið af hendi við Kaífas tengdason sinn. Því láni átti Hannas að fagna aö sjá fimm syni sína, einn eftir annan, hafÖa upp í æÖstaprests-tign. Hannas var af flokki Sadúkea og höfuð voldugustu höfðingjaættar þeirrar tíöar. Hann var orðlagður fyrir vægðarleysi og grimd í dómum. Mun hann hafa, þó litið ibæri á, kveðið á um líflát Jesú, að sínu leyti eins og sonur hans réði því nokkrumj árum síðar, að Jakob, bróðir Jesú, var hálshöggvinn í Jerúsalem. Þegar þessi saga gerist hafði Kaífas' setið aö völdum í seytján ár, og með lævísi komið svo' ár fyrir borð, að Pílatus landstjóri fékk aldrei færi á honumi, svo meinilla sem Pílatusi var þó við hann. En þegar til atkvæðis' Kaífasar kom í málefnum Gyðinga, var hann ekki annað en leiksoppur í höndum Uannasar gamla. Gyðingasaga Jósefusar getur nokkurra þeirra prestahöfð- ingðja, sem um þessar mundir skipuöu kirkjuráðið ásamt æðsta presti og má því telja þá við málið riðna. Má þar fyrst telja bræður tvo. Hét annar Jóazer, en hinn Eleazar. Voru þeir syn- ir Símonar frá Alexandríu og Ibræður fríðleikskonunnar léttúð- ugu, Mariamne, sem Heródes hafði tekið sér fyrir konu. Þeir bræður voru lílct og faðir þeirra, mestu misyndismenn, en voru hafðir til valda vegna tengdanna við konunginn. Þeir höfðu jafn- an í fylgd með sér flokk vopnaðra óeirðarmanna og var sú sveit illræmd af alþýðu. Þá er og talinn i prestahópi þessum maður sá, er Símon hét og kallaður var Kanpera, eður hinn eirðarlausi. Bar hann nafn með rentu, átti jafnan i ófriði og varð um síðir, að því er ætlað er, banamaður Jakdbs postula Sebedeussonar. Son- ur þessa rnanns, er EHóneus hét, átti og sæti í prestaráöinu og var engi föðunbetrungur. Þá er og nefndur prestur sá, er Ismael Ben Phobi hét, ^glæsimenni mikið og hégómlegur úr hófi. Er hans í annálum getið fyrir yfirgang og ránskap og varð þó síðar æðsti-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.