Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1926, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.03.1926, Blaðsíða 25
varia svo þörf eÖa heppileg, sem fyr var álitiÖ. Fyrst og fremst eru heimsskoöanakerfin samskonar örlögum háÖ eins og hver önnur tízka, og iþarf »þá sífelt aÖ leggja nýjan og nýjan skilning í frásagnir biíbliunnar, ef alt; á aö falla þar i ljúfa löð; en þaö getur valdiS hártogunum og óhreinskilni. Og í annan staS ber að gæta þess, að biíMíuritin eru trúar-rit en ekki vásinda. Satt er þaö, aÖ sérhver uppgötvun, söguleg eða vísindaleg, sem að ein- hverju leyti færir sönnur á orS ritningarinnar, getur komið krist- indóminum að all-miklu liði. En gildi biblíunna er ekki komið undir þeim hlutum. Boðskapur hennar er andlegs eðlis og “dæmist andlega.” Spurningin, sem mestu varðar í því efni, er ekki um þaö, hvort ritningin skýri nákvæmlega rétt frá sólkerf- inu, eða lögun og aldri jarSarinnar, eða ytri lifskjörum frum- mannsns, eðal herferðum Sankeribs — heldur þessi: Segir hún sannleikann um GuS og vilja hans, um andlegt ástand mannsins, um gildi trúar og siðgæðis, um veginn til eilífs lífs? Reynist þetta megin-erindi bókarinnar satt og ábyggilegt, þá gjörir auð- vitað minna til um hin atriöin, sem liggja þar utan við. En fari hún vilt á þessu sviði, þá er ágæti hennar horfið um leiö, hið sérstaka, sem 'kristnir menn hafa reitt sig á, öld eftir öld; og verður þá litlu bjargaB, þó reynt ,sé að sýna fram á það, að í einstökum atriðum komi orð hennar heim við kenningar vísind- anna. Og einmitt þarna fer hjálpsemin út um jþúfur í Skírnis- greininni. Eftir þeirri skýringu, sem þar er gefin, verður synda- falls-sagan all-vel samhljóða nýjustu vísinda-skoðunum, en al-röng í trúarefnum Framþróunarkenning vorrar aldar getur þess1 til, aö stórvægilegar breytingar hafi orðið á innra og ytra lífi mannsins þegar í öndverðu. Syndafallssagan á að sýna byltingu þessa, eins og í skuggsjá í óljósri mynd, á að skýra frá þeim atburðum, þegar maðurinn yfirgaf áhyggjulaust apa-lífið í frumskógunum og hættir sér út á sléttumar; tekur að ganga á afturfótunum, svo að líkams'byggingin breytist og konunni verð- ur erfiðara um foarnsburð1; leggur út í erfiðari lifsbaráttu og eykur sér þar með bæði vit og strit, og seilist um leið eftir sið- gæðisvitundinni, en kún á að hafa verið ávöxturinn á forboðna trénu. Þar skilur vörn og só'kn, hjá greinarhöfundinum, því að hann leggur mest-allan trúarlærdóm sögunnar út á verri veg; lætur Drottin ý“Jahve”J birtast þar eins og eigingjarnan harð- stjóra, máttlítinn, afbrýðissaman og jafnvel heimskan, sem hefnir þess greypilega, að maðurinn skyldi voga sér að greina rétt frá röngu. Við þetta lendir svo siðferðislærdómurinn líka á önd-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.