Sameiningin - 01.05.1927, Blaðsíða 5
i3i
var bundið, að fara lieim til mæðra sinna. Skyldu þá
allir færa móður sinni smágjafir, brauðköku, eða annað
sælgæti. Var það mörgu heimili mikill gleðidagur.
“Mæðradagur” sá, sem nú er farið að halda hátíð-
leg'an í Maí-mánuði, er á þann hátt til kominn, að stúlka
nokkur í Philadelphia, Anna Jarvis að nafni, misti móð-
ur sína skömmu eftir aldamótin. Hafði hún unnað
móður sinni mikið og setti sér það, að helga einn dag á
ári hverju minningu hennar sérstaklega. Lagði hún
þann dag jafnan blóm á leiði móður sinnar og g*af gjafir
í minningu um liana. Ungfrú Jarvis kom til hugar, að
margar stúlkur aðrar myndi hafa yndi af sama sið, ef
þær temdu sér hann. Skrifaði hún því árið 1906 fjölda
bréfa til ungra kvenna víðsvegar um land og lagði til,
að þær gengist fyrir því hátíðarhaldi hver á sínum stað.
Fékk mál þetta svo góðan byr, að þegar árið 1910 var
“mæðradagur ” hátíðlegur haldinn í mörgum borgum í
Bandaríkjunum. 10. maí 1913, var þingsamþykt gerð í
háðum deildum kongressins, á þá leið, að á alþingi og
öllum skrifstoifum landstjórnarinnar skyldi mæðradag-
urinn vera helgur dagur. Næsta ár fól alþingi forseta
Bandaríkjanna að skipa árlega annan sunnudag í maí
sem “mæðradag'” í öllu landi. Yfirlýsing þess efnis
kom fyrst frá Woodrow Wilson forseta, og skipaði liann
svo fyrir, að það ár (1914) skyldi sunnudagurinn 9. maí
vera “mæðradagur” um öll Bandaríki. Síðan liafa for-
setarnir skipað ’fyrir um daginn árlega, líkt og þeir
skipa fyrir um þakkar-hátíðina á haustin.
1 Canada var siður þessi tekinn upp orðalaust, að
dæmi Bandaríkjabúa, og gera yfirvöld í borgum og fylkj-
um íbúum þeirra árlega aðvart um “Mæðradaginn. ”
IJátíð þessi liin nýja hefir átt miklum vinsældum
að fagna. Finst þó mörgum æði óþarft að fjölga hátíð-
um fram yfir það, sem verið hefir. Bent hefir verið á
það einnig, að gamla boðorðið segi eitthvað um það, að
maðurinn eigi að heiðra bæði föður sinn og móður.
Hvað sem þessu líður, þá er þó vel farið, ef siður þessi
verður til þess að auka ást manna og virðingu fyrir
foreldri sínu. B. B. J.