Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.05.1927, Qupperneq 6

Sameiningin - 01.05.1927, Qupperneq 6
132 Góðvildar vikan. Maður hefir naumast undan að lesa um, hvað þá að átta sig sæmileg-a á nýjum hreyfingum hinna and- legu vatna. Engum sjáandi og lieyrandi manni fær ])að dulist, að um víða veröld eru ótal góðir menn um það eitt að hugsa, hvernig bæta megi hag og liugarfar niami- anna í þessum hatursfulla heimi. Virðing og vegsauki er það kirkjunni, að oftast snóa menn sér til hennar með umbóta-hugmyndir sínar og hiSja hana að taka þær til uppeldis. Svo er með hreyfingu þá, sem nú um ræðir. Stjórnarvöld margra ríkja biðja kirkjuna að taka í sitt skjól “góðvildar-vikuna”, sem byrjar sunnudaginn 15. maí. Að dæmi annara lét fylkisstjórinn í Manitoba það boð út ganga, að skorað væri á alla fylkisbúa að helga þá viku alla hugsunum og orðum um alheims frið. Prest- arnir voru beðnir að prédika um frið á jörðu, og í öllum skólum átti að kenna börnum lexíur friðarins vikuna þá. Það er með “góðvildar-vikuna” eins og með “mæðra- daginn ’ ’, að hún er komin og búin að ná hefS og fótfestu áður en maður veit af henni. Upptökin eru þau, að árið 1922 bar presturinn Gwilym Davies, sem er heið- urs-forstjóri hjálparfélags Alþjóðabandalagsins í Wales, þá tillögu fram, að börnin í Wales sendu árlega börnum allra annara landa kærleiks-kveðju og vináttu-boð. Þetta fékk ágætar undirtektir, og hefir síðan á ári hverju blessunarorðum barnanna í Wales verið víðvarpað frá radió-stöSvunum á Bretlandseyjum og frá Eiffel-tum- inum í París. Kveðjuorðin nú í ár eru á þessa leið: “Við, drengir og stúlkur í hertogadæminu Wales og Monmouthshire, lieilsum með fögnuði drengjum og stúlkum í öllum öðrum löndum undir sólinni. Viljið þið ekki, miljónum saman, sameinast í bæn um það, að GuÖ blessi viðleitni góðra manna og kvenna, sem að því vinna af öllum kröftum víÖsvegar um heim, að gamlar deilur verði jafnaðar án blóðsúthellingar? Þá verður engin þörf á því, að við, þegar við stálpumst, sýnum ást okkar til þess lands, sem við búum í, meÖ því að hata og drepa hvert annað. Lengi lifi Bandalag þjóðanna, — vinur

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.