Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1927, Síða 9

Sameiningin - 01.05.1927, Síða 9
i3S Fimtíu og fimm ríki hafa. þegar gengið í Bandalag- ið. Á ári hverju heldur Bandalagið þing í Genf. Mæta þar þrír fulltrúar fyrir hvert- ríki. Milli þinga liefir ráðið (Council) stjórn Bandalagsins með höndum. Hef- ir það árið um kring aðsetur í Genf. Allar gerðir bæði þingsins og ráðsins eru opinberar og er það nýlunda, að ræða millilandamál fyrir opnum dyrum og mikil umbót. á launmakki því, sem áður tíðkaðist. Ríkin, sem í Bandalaginu standa, eru bundin þessum skilyrðum: “1. Að skoða enga ófriðarbliku, hve fjarlæg sem er, óviðkomandi. 2. Að láta mál annara ríkja afskiftalaus að fyrra bragði. 3. Að verja Bandalagsríkin fyrir árásurn annara. 4. /Að leggja deilumái Ymdir gerðardóim Bianda- lagsins. 5. Að hlvða úrskurðum gerðardóma. 6. Að leggja ekki út í ó'frið móti samlþykki Banda- lagsins. 7. Að bíða að minsta kosti þrjá mánuði eftir að á- ikvörðun er tekin, áður en lagt er út í ófrið. 8. Að taka þátt í sambands- og viðskiftasliti við hverja þá þjóð, sem leggur út í ófrið án samþykkis Bandalagsins.” *) Af þessu má sjá, að grundvöllur sá, er Þjóðbanda- lagið hvílir á, er rúmmálsihikill og traustur. Hér við bætist enn tvent, .sem mikilvægt má telja og nú er komið undir stjórn Bandalagsins: Alþjóðadóm- stóllinn í Haag og alþjóða samtök um bætt kjör verka- íýðsins. Þótt enn sé ekki liðin nema átta ár frá stofnun Banda- lagsins, hefir það þó þegar unnið mikið verk og fagurt. Ó'friði hefir það hvað eftir annað afstýrt, viðreist fjár- hag heilla þjóða (Austurríki), bjargað flóttamönnum undan ofsóknum harðstjórna, gert afvopnunarmálið að stórmáli hjá mörgum þjóðum, leiðbeint samgöngumálum *) Sbr. “Eimreiðin”, Okt.-Des. 1925.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.