Sameiningin - 01.05.1927, Blaðsíða 28
154
V8 höfum deytt son GuÖs með syndum okkar. Er nokkur
vegur að forða sér? Já. GuÖ sjálfur segir viÖ okkur:
“ÞiS áttuð ekkert meÖ aÖ dey8a soninn minn með syndum
ykkar. Þið ættuð að deyja, en eg hefi heitið ykkur frelsun. Eg
gaf ykkur heit um eilíft lxf fyrir trúna á minn eingetinn son, sem
bar syndir ykkar á eigin lílcama sínum upp á tréð; og frelsun
skuluð þið fá. Forðið ykkur.”
En eg er aðeins hestasveinn Di'ottins, og eg leiði ykkur að
reiðskjótanum og bið ykkur að komast á bak í skyndi og ríða
burt. Á þessari sléttu munuð þið farast. Komist til föðurhús-
anna. Þá munuð þið lifa. Ykkur er veitt eftirför, hafið hraðan
við; flýið, flýiÖ! Annars' mun brúni hesturinn ná þeim hvíta, og
öxin kljúfa hjálminn og sundra bi'ynjunni. Og í þessari ógnar
hættu sem vofir yfir andanum ódauðlegum í brjósti ykkar, þá
varið ykkur á því, að meta ekki öskuna meira en brauðiÖ.
G. G.
Hljómlistin í Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg.
Stórstígum framförum tekur hljómlistin með hverju ári í
Fyrsta lút. söfnuði í Winnipeg. Safnaðar söngflokkarnir eru
tveir, yngri og eldri flokkarnir, og auk þess hljóðfæraflokkuidnn,
sem í eru um 25 manns. Á þessu vori hafa flokkarnir afkastað
miklu. Má fyrst telja helgisöng þann ('cantataj út af pínu og
dauða Krists, sem sunginn var á föstudaginn langa af svo mik-
illi list og tilfinningu, að enginn getur gleymt. Þá má og nefna
sönginn mikla á ungmennamótinu. Mesta eftirtekt hefir það þó
vakið, er eldri söngflokkur safnaðarins tók þátt i sönghátíðunum
almennu í Vestur-Canada, nú fyrir skemstu, og bar þar sigur úr
býtum í samkepni við aðra kirkjusöngflokka og færði kirkju sinni
heim verðlaunaskjöldinn. Á sönghátíðum þeim vann og hljóÖ-
færa-flokkur sunnudagss’kólans frægan sigur og varði með heiðri
og sóma, nú í þriðja sinn, sigurskjöld þann, er hann hlaut fyrir
fjórum árum á sönghátíðinni þá. Foringi og kennari hljóðfæra-
flokksins er hr. Stefán Sölvason, en söngflokkunum báðum stýr-
ir hr. Páll Bardal, organistinn er hr. Steingr. K. Hall,
Meiru varðar það þó en þessir sigrar út á við, að hvern helg-
an dag má heita að sönghátíð sé í kirkjunni og sunnudagsskólun-
um. Og enn mestu varðar það, að söngurinn allur er réttnefnd-