Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 4
30. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR4
ORKUMÁL Kjartan Magnússon,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, segir aðgerðaráætlun fyrir-
tækisins að mörgu leyti skyn-
samlega. Hann telur þó að tíð
forstjóraskipti fyrirtækisins og
uppsögn fjármálastjóra á síðustu
mánuðum hafi haft slæm áhrif
á viðhorf erlendra banka. Hann
segir yfirlýsingar bankanna gríð-
arleg vonbrigði. Kjartan situr
einnig í stjórn OR.
„Ég er hræddur um að það hafi
verið röng ákvörðun að skipta um
þessa tvo lykilstjórnendur,“ segir
Kjartan, og á þar við Hjörleif
Kvaran, fyrrverandi forstjóra,
og Önnu Skúladóttur, fyrrverandi
fjármálastjóra. „Einnig hafa öll
þau klaufalegu ummæli sem hafa
verið látin falla
í fjölmiðlum
alveg örugg-
lega ekki hjálp-
að og sennilega
dregið úr vilja
bankanna til
að endurfjár-
magna.“
Kjartan er
í meginatrið-
um sammála
því að selja sem mest af eignum
Orkuveitunnar og styður tillögu
forstjórans um að koma Gagna-
veitunni í verð. Hann dregur þó
gjaldskrárhækkanirnar í efa og
segir þá útreikninga sem liggi
fyrir ekki fullnægjandi.
Kjartani líst vel á áform borgar-
ráðs að láta gera úttekt á starfsemi
Orkuveitunnar aftur í tímann. Það
sé þó ekkert nýtt, heldur séu reglu-
lega gerðar slíkar úttektir.
„Ég tel að það væri rétt að
málin yrðu skoðuð alveg frá stofn-
un fyrirtækisins,“ segir hann.
„Það verður ekki litið framhjá því
að afar margar skuldir urðu til á
tímabilinu 2003 til 2006.“ - sv
Ég er hræddur um að
það hafi verið röng
ákvörðun að skipta um þessa
tvo lykilstjórnendur
KJARTAN MAGNÚSSON
BORGARFULLTRÚI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Ranghermt var í frétt um rafgreining-
arbúnað sem framleiðir vetni í bílvélar
að fyrirtækið HB tækniþjónusta hafi
hætt við að koma upp slíkum búnaði
eftir prófanir. Fyrirtækið sem hætti við
heitir HBT International og er íslenskt
tæknifyrirtæki.
ORKUMÁL Ljóst er að óleyst fjár-
þörf Orkuveitu Reykjavíkur út
árið 2016 er um 50 milljarðar
króna. Þeir peningar eiga að fást
með umfangsmikilli hagræðingu
og breytingum á starfsemi fyrir-
tækisins. Hækkun fráveitu- og
hitaveitugjalda, innri hagræðing
og frestun fjölda framkvæmda
er meðal þess sem er ætlað að
brúa þetta stóra bil. Sala á eign-
um Orkuveitunnar, þar á meðal
höfuðstöðvunum við Bæjarháls,
Perlunni og Gagnaveitu Reykja-
víkur, á að skila fyrirtækinu um
tíu milljörðum króna.
Ef ekkert verði að gert er óvíst
hvort nægir peningar væru til
þess að borga starfsfólki laun í lok
aprílmánaðar. Má segja að fyrir-
tækið sé tæknilega gjaldþrota.
Bjarni Bjarnason, nýráðinn for-
stjóri OR, segir mikla endurskipu-
lagningu fram undan.
„Orkuveitan er strand,“ segir
Bjarni. „Og líkt og menn gerðu
þegar skipið Goðafoss strandaði
á dögunum þarf að bera allt frá
borði sem ekki þarf að vera þar.“
Bjarni segir ímyndarvanda
fyrirtækisins mjög alvarlegan og
nauðsynlegt sé að ráða á honum
bót nú þegar. „Orkuveitan veit ekki
hver hún er eða hvers er ætlast til
af henni,“ segir hann og nefnir þar
hina ýmsu titla fyrirtækisins sem
tilgreindir eru á heimasíðu þess.
Þá segir hann brýnt að endurskoða
kjarnastarfsemina. Orkuveitan
sé fyrst og fremst veitu- og þjón-
ustufyrirtæki í eigu almennings.
Bjarni skilgreinir hvorki Gagna-
veituna né vinnslu raforku til stór-
iðju sem kjarnastarfsemi. Þó ligg-
ur ekki fyrir ákvörðun um sölu á
Gagnaveitunni. Talið er að hún sé
metin á um fimm milljarða króna.
Bjarni segir Gagnaveituna í raun
einu eign Orkuveitunnar sem skili
tekjum svo nokkru nemi.
Spurður hvort þetta umfangs-
mikla verkefni sem fram undan er
vaxi honum í augum segist Bjarni
þvert á móti hlakka til.
„Þetta er afar mikilvægt
fyrirtæki og það skiptir máli að
það sé rekið með trausti. Það er
svo samofið nútíma lífsgæðum
að ég hlakka til að fást við þetta,“
segir hann.
Reykjavíkurborg samþykkti í
gær tólf milljarða króna björgun-
arpakka til þess að mæta lausa-
fjárvanda fyrirtækisins. Átta
milljarðar verða greiddir út í apríl
næstkomandi og fjórir milljarðar
árið 2013. Lánveitingin minnk-
ar haldbært fé Reykjavíkurborg-
ar í árslok, en í tilkynningu frá
borgarstjórn segir að sú fjárhæð
standi engu að síður í rúmum átta
milljörðum króna.
Borgarráð ákvað í desember að
láta gera ítarlega úttekt á málum
Orkuveitunnar og var sú ákvörðun
færð til bókar á borgarráðsfundi í
fyrradag. Jón Gnarr borgarstjóri
segir mál fyrirtækisins afar tyrfið
og mjög flókið í alla staði.
„Við munum láta gera þessa
úttekt eins fljótt og mögulegt er,“
segir Jón. „Og munum fá til þess
mjög hæfa og óháða einstaklinga.“
Óvíst er hvenær niðurstöður
úttektarinnar munu liggja fyrir.
sunna@frettabladid.is
Orkuveitan sigldi í strand
OR þarf 50 milljarða til þess að borga skuldir sínar. Sala eigna, hækkun gjaldskráa og frestun framkvæmda
er meðal annars ætlað að brúa bilið. Nauðsynlegt að endurskoða hlutverk fyrirtækisins, segir forstjóri OR.
Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur í tölum
Aðgerð Áætlað fjármagn til ársins 2016
Frestun viðhaldsfjárveitinga 15 milljarðar
Dregið verður úr viðhalds- og nýfjárfestingum í veitukerfum OR.
Dregið úr öðrum fjárfestingum 1 milljarður
Lækkun á ófyrirséðum fjárfestingum kallar á aukið aðhald varðandi fjárfestingar.
Hækkun gjaldskráa 8 milljarðar
Fráveitugjald verður hækkað um 45 prósent og hitaveitugjald um 8 prósent.
Eignasala 10 milljarðar
Sala á höfuðstöðvum OR við Bæjarháls, Perlunni, hugsanlega Gagnaveitunni og öðrum
eignum sem ekki eru skilgreindar sem kjarnastarfsemi. Veruleg óvissa ríkir um hvort takist að
selja eignirnar á tímabilinu.
Aukin hagræðingarkrafa 5 milljarðar
Starfsmönnum mun fækka um 90 á tímabilinu en ófyrirséð er hvort beinar uppsagnir munu
eiga sér stað.
Lán frá eigendum 12 milljarðar
Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð veita OR verðtryggt lán til 15 ára.
Alls 51 milljarður
Gjaldskrá á heitu vatni og fráveitu-
gjöldum mun hækka 1. maí
næstkomandi. Fráveitugjöld munu
hækka um 45 prósent en heita
vatnið um 8 prósent.
Þessar hækkanir verða um
1.500 króna viðbót við hitaveitu-
reikninga fyrir100 fermetra íbúð á
höfuðborgarsvæðinu.
Gjaldskrá Orkuveitunnar hækk-
aði síðast í nóvember í fyrra. Með
komandi breytingum í maí mun
hitaveitugjald hafa hækkað um 40
prósent frá því í október 2010.
Hækkanir á gjaldi
Orkuveitan veit ekki
hver hún er eða
hvers er ætlast til af henni
BJARNI BJARNASON
FORSTJÓRI OR
LAUSNIN KYNNT Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, kynnti fyrir blaðamönnum
umfangsmikla aðgerðaráætlun til bjargar fyrirtækinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fulltrúi minnihluta í stjórn OR segir björgunaráætlanir að mörgu leyti skynsamlegar:
Telur tíð forstjóraskipti Orkuveitu mistök
OKURVERÐ Svona var eldsneytisverðið
8. mars. Hækkandi eldsneytisverð er
meðal þátta sem aukið hafa verðbólgu
milli mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSLÍF Verðbólga jókst um
0,95 prósent milli febrúar og
mars samkvæmt nýbirtum tölum
Hagstofu Íslands.
Ársverðbólga mælist því 2,3
prósent í mars, en var í fyrri
mánuði 1,9 prósent. Fram kemur í
umfjöllun Hagstofunnar að verð-
bólga hafi aukist um 1,2 prósent
síðustu þrjá mánuði, en það jafn-
gildi 5,0 prósenta verðbólgu á ári.
Fram kemur í umfjöllun Grein-
ingar Íslandsbanka um verðbólg-
una að hækkandi eldsneytisverð,
útsölulok og hækkun íbúðaverðs
hafi hvað mestu ráðið um aukna
verðbólgu í mars. „Þeir liðir sem
héldu aftur af mánaðarhækkun-
inni nú voru fyrst og fremst verð
dagvöru og þjónustu,“ segir í
morgunkorni bankans í gær. - óká
Eldsneytisverð hefur áhrif:
Verðbólga kom-
in í 2,3 prósent
KJARTAN
MAGNÚSSON
GENGIÐ 29.03.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,1905
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,69 115,23
183,44 184,34
161,54 162,44
21,659 21,785
20,437 20,557
17,994 18,1
1,399 1,4072
181,25 182,33
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Fallegar
gjafaumbúðir
Hentar öllum
Gildir hvar sem er
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Gjafakortið sem
gildir alls staðar
Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.
Í blaðinu í gær var ranglega sagt að
sækja ætti fé í sjóði Orkuveitunnar til
að bjarga rekstri fyrirtækisins. Sækja
á í sjóð borgarinnar, aðaleiganda OR.
Þá seldi OR ekki hlut sinn í Lands-
virkjun heldur Reykjavíkurborg.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
16°
16°
9°
17°
12°
6°
6°
20°
12°
19°
10°
30°
2°
14°
21°
3°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FÖSTUDAGUR
3-8 m/s.
4
4
3
3
5
3
4
6
8
5
7
8
15
9
3
8
6
6
3
5
4
8
5
5
6
6
8
5
5
5
4
6
RIGNING MEÐ
KÖFLUM Það má
segja að veður
verði nokkuð gott
næstu daga þrátt
fyrir úrkomu í kort-
unum. Vindur verð-
ur fremur hægur
og ætti að glitta í
sólina á milli skúra.
Milt í veðri og
ætti hitinn að ná
að minnsta kosti
4-5°C í allfl estum
landshlutum.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður