Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 6
30. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR6
N
ánar á sim
inn.is
Ef þú ert með Sjónvarp Símans
færðu 50% afslátt af
myndum í Skjábíói í dag.
Magnaðir
miðvikudagar!
50%
afsláttur
í SkjáBíói!
Skannaðu hérna
til að sækja
28
B
arcode Scanner
Náðu í
kvikmyndaforrit
STJÓRNMÁL Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
mætti ekki til fundar sem hann
hafði verið boðaður á með forsæt-
isráðherra, fjármálaráðherra og
forystumönnum Samtaka atvinnu-
lífsins og útvegsmanna síðdegis á
mánudag. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins kom fjarvera Jóns
á fundinum samráðherrum hans á
óvart, en mikil áhersla hafði verið
lögð á það mánuðum saman af
hálfu forsvarsmanna í atvinnulíf-
inu að fá fund með þessum þrem-
ur ráðherrum saman til að ræða
áformaðar breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að fulltrúar SA og Landssambands
íslenskra útvegsmanna hafi verið
mættir til fundar við ráðherrana
þegar kom upp úr dúrnum að Jón
Bjarnason væri farinn til Kaup-
mannahafnar á fund sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra Norður-
landaríkja, en fundarefnið er
samstarf ríkjanna um erfðaauð-
lindir. Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra og Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra munu
hafa gert ráð fyrir að Jón mætti til
fundarins, en fréttu utan að sér að
hann væri farinn til Kaupmanna-
hafnar.
Fjarvera sjávarútvegsráðherr-
ans og þau svör sem fengust af
hálfu hinna ráðherranna munu
vera ein meginástæða þess að
Samtök atvinnulífsins hafa lýst
því yfir að lokakafla samninga-
viðræðna við Alþýðusambandið
um nýjan kjarasamning hafi verið
slegið á frest um óákveðinn tíma.
Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins, sagði í
samtali við Fréttablaðið í gær
að óvissa væri um aðkomu ríkis-
valdsins að mörgum málum, þar á
meðal sjávarútvegsmálum.
Bjarni Harðarson, upplýsinga-
fulltrúi sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytisins, sagði í samtali
við Fréttablaðið að boð um þennan
fund lægi ekki fyrir í ráðuneytinu.
„Það var enginn slíkur fundur
haldinn hér í ráðuneytinu né held-
ur að það liggi fyrir hér boð um
slíkan fund. Hafi verið ákveðið
að halda slíkan fund eftir að ráð-
herra fór utan er auðvitað ekkert
við því að segja, en það má benda
á að utanfarir sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra hafa ekki
verið margar á síðustu misserum
og þetta er hans fyrsta utanferð á
þessu ári.“ thorgils@frettabladid.is
Jón mætti ekki á
fund með SA og LÍÚ
Jón Bjarnason mætti ekki til fundar með forsvarsmönnum ríkisstjórnarflokk-
anna, Samtaka atvinnulífsins og LÍÚ. Var erlendis, en upplýsingafulltrúi segist
ekki kannast við fundarboð. Fjarvera Jóns meðal ástæðna fyrir óánægju SA.
MÆTTI EKKI Á FUND Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mætti sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra ekki til fundar með formönnum stjórnarflokkanna og fulltrúum
SA og LÍÚ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VIÐSKIPTI Framtakssjóður Íslands
ætlar ekki að fjármagna tap-
rekstur fyrirtækja í eigu hans,
að sögn Finn-
boga Jónssonar,
framkvæmda-
stjóra sjóðsins.
Finnbogi var
á meðal þátt-
takenda á Kaup-
hallardegi
Arion banka í
gær. Þar var
hann spurður
um stefnu sjóðsins og aðstoð við
fyrirtæki hans í fjárþörf.
„Við getum stutt við félögin.
Ef við leggjum fjármagn í félög
þá verður það til uppbyggingar
þeirra og til fjárfestinga,“ svar-
aði Finnbogi. Hann bendir á að
sjóðurinn meti það hverju sinni
hvort rekstur fyrirtækja í hans
eigu sé sjálfbær til framtíðar
eður ei.
- jab
Fjármagna ekki tapreksturinn:
Styðja við félög
og fjárfestingar
Skúmaskot til ama í Ölfusi:
Börn ganga um
í ælu og þvagi
Það var enginn slíkur
fundur haldinn hér
í ráðuneytinu né heldur að
það liggi fyrir hér boð um
slíkan fund.
BJARNI HARÐARSON
AÐSTOÐARMAÐUR JÓNS BJARNASONAR
SJÁVARÚTVEGS- OG
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
FORNMINJAR Merkur handritafundur, sem gæti varp-
að nýju ljósi á sögu frumkristninnar, er nú deiluefni
Ísraela og Jórdana.
Handritin fundust í helli í Jórdaníu, líklega á
árunum 2005 til 2007. Ónafngreindur bedúíni er
sagður hafa fundið þær, en annar bedúíni er sagður
hafa flutt þær til Ísraels. Hann segir fundarstaðinn
lengi hafa tilheyrt fjölskyldu sinni.
BBC fullyrðir að Jórdanar vilji nú fá blýhandrit
þessi aftur frá Ísrael.
Handritin eru um það bil sjötíu talsins, en í hverri
bók eru aðeins fimm til fimmtán blöð og þau eru
ekki stærri en kreditkort. Blöðin eru steypt úr blýi
og kopar og bundin saman með hringjum.
Skýrt er frá þessu á vefsíðum breska útvarpsins
BBC. Þar er vitnað í sérfræðinga sem segja þennan
handritafund hugsanlega jafnast á við Dauðahafs-
handritin og geti því varpað nýju ljósi á upphaf
kristinnar trúar.
Bækurnar eru skrifaðar á fornhebresku og
skreyttar ýmsum táknum, sem benda til tengsla við
frumkristna söfnuði.
Fyrstu rannsóknir benda til þess að blýplöturnar
séu frá fyrstu öld okkar tímatals, en rannsóknir
eiga eftir að leiða í ljós hvort þarna sé um síðari
tíma verk og hugsanlega fölsun að ræða. - gb
Jórdanar vilja fá bækur frá frumkristni sem fundust í helli aftur frá Ísrael:
Gætu skýrt upphaf kristninnar
FORN KIRKJUSTAÐUR Þessi hellir í Jórdaníu er talinn vera elsta
kirkja kristinna manna. Blýbækurnar fundust einnig í helli í
Jórdaníu. NORDICPHOTOS/AFP
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið er sem fyrr lang-
mest lesna dagblað landsins, samkvæmt
nýrri mælingu Capacent. Lestur á Frétta-
tímanum er nú í fyrsta skipti inni í lestrar-
mælingum og lestur á DV er mældur aftur
eftir nokkurt hlé.
Samkvæmt upplýsingum frá Capacent
stendur til að mæla lestur á öllum blöðum
sem gefin eru út í dagblaðaformi. Því má
búast við mælingum á lestri á Viðskipta-
blaðinu, Finnur.is og mögulega öðrum
blöðum sem gefin eru út reglulega.
Nýjustu mælingar Capacent leiða í ljós
að 60 prósent landsmanna lesa Fréttablaðið
að meðaltali. Það er 0,9 prósentustigum
minna en í síðustu mælingu, sem gerð var í
október. Lesturinn er mestur meðal höfuð-
borgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára, 71,8
prósent.
Alls lesa 33,2 prósent landsmanna
Morgun blaðið, og hefur lesturinn aukist um
1,7 prósentustig frá því í október. Um 28,6
prósent höfuðborgarbúa á aldrinum 18 til
49 ára lesa hvert tölublað.
Um 41,8 prósent landsmanna lesa Frétta-
tímann, sem kemur út einu sinni í viku, á
föstudögum. Um 48,6 prósent höfuðborgar-
búa 18 til 49 ára lesa blaðið.
Alls lesa 12,5 prósent DV, sem kemur út
þrjá daga í viku. Um 10,7 prósent höfuð-
borgarbúa á aldrinum 18 til 49 ára lesa
blaðið að meðaltali. - bj
Sex af tíu landsmönnum lesa Fréttablaðið samkvæmt nýrri lestrarmælingu Capacent:
Mæla lestur allra blaða á dagblaðaformi
Meðallestur á hvert tölublað
60,0% 33,2% 12,5% 41,8%
60
50
40
30
20
10
0
Heimild: Capacent
Ætti að lækka opinberar álögur
á eldsneyti?
Já 89%
Nei 11%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Styður þú ákvörðun Reykja-
víkurborgar að lána OR 12
milljarða króna?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
FÉLAGSMÁL Skot við innganginn
á Félagsmiðstöðinni Svítunni á
Þorklákshöfn er til ama fyrir
unglinga í Ölfusi, að því er
ungmennaráð sveitarfélagsins
segir.
„Helsti gallinn við húsnæðið
er skotið við innganginn því
fyrir ofan félagsmiðstöðina er
bar og þetta skot virðist verða
salerni um helgar.
Því er nauðsynlegt að loka
þessu skoti svo ungmenni þurfi
ekki að ganga í þvagi og ælu
þegar þau mæta í félagsmið-
stöðina á mánudögum. Ekki er
við hæfi að ungmenni í sjötta
til tíunda bekk þurfi að ganga
inn um inngang sem er í þessu
ásigkomulagi,“ segir ungmenna-
ráðið sem þó kveður unglingana
almennt sátta við aðstöðuna
í Svítunni og það sem þar er
í boði. Ráðið hefur ákveðið að
senda erindið
til bæjar-
stjórnar.
- gar
Yfrlýsingar Samtaka atvinnulífsins
um að ríkisstjórnin sé ráðalaus
þegar kemur að kjaraviðræðum
koma á óvart, sagði Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra í
viðtali við RÚV í gær. Steingrímur
sagði góðan gang í vinnunni og að
hægt yrði að ná saman um fleira
en að kröfur um að framtíðarfyrir-
komulag sjávarútvegsmála væru
inni í þessum viðræðum.
Segist hissa á SA
FINNBOGI
JÓNSSON
KJÖRKASSINN