Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.03.2011, Blaðsíða 10
30. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR10 www.nordicaspa.is FRÁBÆR VAXTAMÓTUN MIKIL FITUBRENNSLA GEGGJAÐ FJÖR & SKEMMTILEG TÓNLIST HANDKLÆÐI- OG HERÐANUDD Í POTTUNUM SÉRSNIÐIN ÆFINGAÁÆTLUN MEÐ EINKAÞJÁLFARA 4 VIKNA NÁMSKEIÐ SKRÁNING444-5090 HEF ST 5. AP RÍL B U T T L I F T GEGGJAÐUR ÁRANGUR! BRETLAND „Það er engin framtíð lengur fyrir Líbíu með Gaddafí við stjórnvölinn,“ sagði William Hague, utanríkisráðherra Bret- lands, að lokinni alþjóðlegri ráð- stefnu í Lundúnum um hernaðar- aðgerðirnar í Líbíu. Á fundinum í Lundúnum var samþykkt að halda áfram loft- árásum á liðsmenn Gaddafís og fylgja eftir loftferðabanni og vopnasölubanni, ásamt því að þrýsta á Gaddafí að láta undan uppreisnarmönnum. „Gaddafí hefur enn ekki látið af völdum, og þangað til hann gerir það verður Líbía hættulegur stað- ur,“ sagði Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, að fundinum loknum. Á fundinum voru utanríkisráð- herrar næstum því fjörutíu ríkja, þar á meðal NATO-ríkjanna og aðildarríkja Arababandalagsins, ásamt Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra NATO, Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Catherine Ashton, utanríkismálafulltrúa Evrópusambandsins, og Hesham Youssef, fulltrúa Arababanda- lagsins. „Við vorum öll sammála um að Gaddafí og stjórn hans hefðu glat- að öllu réttmæti og yrðu dregin til ábyrgðar vegna gerða sinna,“ sagði Hague, ánægður með að samstaða hefði verið svona mikil. Þrátt fyrir það berast enn mis- vísandi yfirlýsingar um mark- mið árásanna og enn virðist óljóst hver verkaskipting eigi að vera með Bandaríkjunum, NATO og einstaka aðildarríkjum NATO um bæði yfirstjórn og framkvæmd árásanna. Barack Obama Bandaríkjafor- seti notaði ávarp sitt til þjóðar- innar á mánudagskvöld til að rétt- læta þátttöku Bandaríkjamanna í aðgerðunum í Líbíu. „Hernaðaraðgerðir okkar hafa það þrönga markmið að bjarga mannslífum,“ sagði hann, en sagðist þó ætla að taka þátt með öðrum ríkjum í því að beita Gad- dafí þrýstingi í von um að hann léti af völdum. gudsteinn@frettabladid.is Samstaða um að koma Gaddafí frá William Hague var ánægður með samstöðu á ráðherrafundinum í Lundúnum. Obama segir Bandaríkin losa sig undan meginábyrgðinni af árásunum. Enn berast þó misvísandi yfirlýsingar um markmið árásanna og verkaskiptingu. ÞUNG Á BRÚN David Cameron, forsætis- ráðherra Bretlands, og Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fjölmennum ráðherrafundi í Lundúnum í gær. Meðal þátttakenda á fundinum var Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Á SLÓÐUM KJARNORKUSLYSS Sjö ára drengur, Kenshin Nakajima, sem bjargað var frá Fukushima, með hundi sínum við neyðarskýli í Saitama, sem er skammt frá Tókíó. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UTANRÍKISMÁL Það er réttur þing- flokks Vinstri grænna að andmæla því í ríkisstjórn að Atlantshafs- bandalagið hafi tekið yfir stjórn aðgerða í Líbíu, sagði Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráðherra í við- tali við RÚV í gær. „Við höfum rætt þær aðgerð- ir sem voru samþykktar og álykt- að um í öryggisráðinu. Nú er það NATO sem hefur yfirumsjón með þessum aðgerðum en í eðli sínu hafa þær ekkert breyst, þær tillög- ur sem voru samþykktar. Ég geri engar athugasemdir við hvernig utanríkisráðherra hefur haldið á því máli en Vinstri græn hafa gert athugasemdir við það og það er bara þeirra mál,“ sagði Jóhanna. Aðildarríki bandalagsins verða að ná samstöðu um allar ákvarð- anir þess. Fulltrúi Íslands hreyfði engum andmælum þegar ákveðið var að taka yfir stjórn aðgerða. „Nú er það að vísu ekki svo að Ísland hafi sem slíkt stutt þessar aðgerðir, en það lagðist ekki gegn þeim,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, að loknum ríkis- stjórnarfundi í gær. Hann sagði í viðtali við RÚV að þessi afstaða hafi ekki áhrif á setu Vinstri grænna í ríkisstjórn, en benti jafnframt á þá stefnu flokks- ins að vera andvígur aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. - bj Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir það rétt Vinstri grænna að vera á móti hernaði í Líbíu: Ísland lagðist ekki gegn aðgerðum NATO JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Nú er það að vísu ekki svo að Ísland hafi sem slíkt stutt þessar aðgerðir, en það lagðist ekki gegn þeim. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FORMAÐUR VG OG FJÁRMÁLARÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.