Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2011, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 30.03.2011, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 2011 3pústþjónusta ● Betra Púst í Skógarhlíð 10 er ný pústþjónusta þar sem áhersla er lögð á fljóta og góða þjónustu auk þess að þjónusta stærri farartæki bæði hvað varðar púst, rúðuísetn- ingar og sérsmíði. „Við erum búin að vera hérna í mánuð og viðtökurnar frábær- ar. Þessa þjónustu vantaði á þetta svæði,“ segir Smári Óskar Hólm- arsson, eigandi Betra pústs í Skóg- arhlíð 10 sem má segja að sé beint á móti Hlíðarenda. Smári er þó eng- inn nýgræðingur í faginu því hann byrjaði að vinna hjá föður sínum á pústverkstæðinu Fjöðrinni fimm- tán ára gamall. „Ég hef mikinn og góðan bakgrunn. Það má eiginlega segja að þetta sé í blóðinu,“ segir Smári og hlær. Í húsnæðinu í Skógarhlíð 10 er hátt til lofts og vítt til veggja, auk þess sem innkeyrsludyrnar eru stærri en gengur og gerist á verk- stæðum. „Ég get tekið heilu rút- urnar hérna inn og gert við þær,“ segir Smári. „Hér sérsmíðum við pústkerfi í öll ökutæki, meira að segja vinnuvélar, fjórhjól og mót- orhjól og einnig getum við beygt vatnsrör fyrir pípulagningaverk- taka. Ef það er pústkerfi í far- artækinu þá getum við græjað það. Auk þess bjóðum við upp á að skipta um ljósaperur og rúðu- þurrkur eða bæta á olíuna, ýmis- legt smotterí sem fínt er að koma í lag úr því bíllinn er kominn inn á gólf hjá okkur. Þar að auki bjóðum við upp á þjónustu sem pústverk- stæði eru yfirleitt ekki með, en það eru rúðuísetningar og viðgerðir á framrúðum í allar gerðir bíla. Við leggjum ofuráherslu á vönduð og góð vinnubrögð og að kúnninn fari héðan ánægður.“ Smári segir viðtökurnar hafa verið frábærar. „Það hefur verið ótrúlega mikið að gera hjá okkur síðan við opnuðum og viðtökurn- ar farið fram úr björtustu vonum.“ segir hann. „Fólk kemur með bílinn vegna pústsins og líkar vinnan svo vel að það kemur aftur til okkar ef eitthvað annað bilar. Enda er það prinsippmál hjá mér að bíllinn fari ekki héðan út fyrr en hann er í toppstandi. Ég legg mikið upp úr því að halda kúnnanum vel upplýst- um og láta hann fylgjast með því hvað er að og hvað viðgerðin muni kosta. Við bjóðum líka upp á þá þjónustu að fólk geti komið hingað með bílana og við skoðað þá, komist að því hvað er að og hvað það muni kosta að gera við það. Sú þjónusta kostar ekkert aukalega. Í framtíð- inni er svo meiningin að koma upp huggulegri kaffiaðstöðu þar sem fólk getur sest og beðið á meðan við dyttum að bílnum og haft það huggulegt.“ Með „Betra púst“ í blóðinu „Hjá okkur fást pústkerfi í allar tegundir bíla, líka þau sem ekki eru til en við framleiðum hér á staðnum það sem ekki er fáanlegt ann- ars staðar á landinu. Við eigum gríðarlega mikið úrval af efni sem við getum smíð- að úr,“ segir Einar S. Ólafsson, annar eigenda pústþjón- ustunnar Púst ehf. að Smiðjuvegi 50 í Kópavogi. Einar stofnaði fyrirtækið ásamt Elvari Ö. Magnús- syni bifreiðasmið árið 2006 en hefur sjálfur starfað við smíði pústkerfa í yfir tuttugu ár. Hann er því öllum hnútum kunnugur í faginu eins og hann orðar það og hefur nóg að gera. „Fólk nýtir sér talsvert sérsmíðiþjónustuna en einnig er mikið að gera í tengslum við hvarfakúta í bíla. Við höfum orðið okkur úti um gott úrval af hvarfa- eða mengunarkútum sem kosta minna en ann- ars staðar, til dæmis hjá umboðunum. Við flytjum allar okkar vörur sjálfir inn, sem er ástæðan fyrir því góða verði sem við getum boðið upp á. Ef einhver segði mér að við værum með besta verðið í bænum, þá yrði ég fyrstur til að trúa því,“ segir Einar hlæjandi. Allar upplýs- ingar er að finna á heimasíðu fyrirtækisins, www.pustkerfi.is Sérsmíðum það sem ekki fæst annars staðar „Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til,“ er mottó Einars S. Ólafssonar og Elvars Ö. Magnússonar hjá Pústi ehf. MYND/GVA Hátt eldsneytisverð hefur vakið marga bifreiðaeigendur til umhugsunar um hvernig minnka megi orkunotkun. Nokk- ur atriði er viðhald varða geta haft þónokkuð að segja. Réttur loftþrýstingur í dekkjum skiptir miklu máli en of lítill loftþrýstingur getur aukið eyðslu um 6%. Þá skiptir miklu máli að vélin sé rétt stillt og loftsían hrein til að halda eldsneytiskostnaði niðri. Annað sem getur haft áhrif er óþarfa farangur en aukin byrði veldur meiri áreynslu. Mætti þar huga að því hvort ekki megi fjarlægja toppgrindur og auka- farangursgeymslur ofan á bílþakinu sem ekki eru í notkun. - jma „Við leggjum ofuráherslu á vönduð og góð vinnubrögð,” segir Smári Óskar Hólmarsson, eigandi Betra pústs. MYND: VILHELM Líftími einstakra hluta bifreiðarinnar er mislangur og því misjafnt hvenær þarf að huga að því að endurnýja þá eða gera við. Rann- sóknir hafa verið gerðar á endingu einstakra bílhluta og á heimasíðu Umferðarstofu, umferdarstofa.is, má finna töflu sem sýnir niðurstöður slíkra rannsókna. Sem dæmi um þau meðaltöl sem þar birtast, um endingartíma einstakra hluta, má nefna þurrkublöð, sem rannsóknir sýna að end- ast að meðaltali í 20.000 kílómetra. Þá endast hemlaborðar og hemlaklossar að meðaltali í 40.000 kílómetra og smurolíusía í bensínvél í um eitt ár. - jma Allur gangur á endingartíma Þurrkublöð bifreiða endast sam- kvæmt rannsóknum að meðal- tali um 40.000 kílómetra. Margt eykur orkunotkun Bílaverkstæði Almennar viðgerðir Pústkerfi og sérsmíði Hjólbarðaverkstæði Góð dekk Skiltagerð Bílamerkingar Alþrif Bón Djúphreinsun Filmur Bílgræjur Framrúðuviðgerðir Rafgeymar FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.