Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 4

Sameiningin - 01.09.1919, Síða 4
192 þeir, sem að honum standa að sameinast í trú og bæn og hafa það eitt fyrir augum, að gera Jes i m Krist dýrlegan fyrir starf skólans. í þeirri von biðjum vér skóla Jóns Bjarnasonar bless- unar Drottins á byrjuðu starfsári. Kirkja Selkirk-safnaðar brunnin. pað raunalega slys bar að höndum aðfaranótt sunnu- dagsins 7. þ. m., að kirkja safnaðarins í Selkirk gjöreyddist í eldi, og varð þar engu bjargað öðru en orgelinu og skírnar- fontinum. Ógurlegt þrumuveður gekk þessa nótt og laust eldingu í kirkjuna og stóð hún í björtu báli, áður en slökkvi- liðið kom. Kirkjan var vátrygð einungis fyrir 1200 doll. Skaðinn er því fátækum söfnuði nærri óbærilegur. pó hafa bræður vorir í Selkirk ekki látið hugfallast. Fáum dögum eftir eldsvoðann hélt söfnuðurinn fund og ákvað með Guðs hjálp að koma sér upp nýrri og betri kirkju, þegar er þvi yrði við komið. Auðvitað verður ekki unt að byrja kirkju- smíði fyr en með næsta vori, og verða því guðsþjónustur safnaðarins fluttar í vetur og þar til ný kirkja er reist í samkomuhúsi, sem söfnuðurinn var svo lánsamur að hafa eignast fyrir skemstu og stóð við hliðina á kirkjunni. Ekki biðja þeir Selkirkmenn um hjálp í neyð sinni og með karlmenskuró færast þeir það sjálfir í fang, að end- urreisa kirkju sína, svo mikið Grettistak sem það verður þó vegna þess, hversu ógurlega dýrt alt byggingarefni er nú. En nú reynir á íslenzkan drengskap og kristilegan bróður- hug annara manna víðsvegar um söfnuði vora. það hefir ávalt verið talin fögur dygð að létta byrði þeirra, sem verða fyrir mótlæti. Og þar sem nú eiga í hlut félagsbræður vorir og systur í kirkju Krists og einn hinn elzti og tryggastí söfnuður kirkjufélags vors, þá ætti það að vera ljúf hvöt margra manna, að rétta nú Selkirk-söfnuði hjálparhönd. Og skorum vér því á almenning safnaða vorra að bregðast vel við þessari málaleitan og senda sem fyrst gjafir í kirkju- byggingar-sjóð Selkirk-safnaðar. Vilji menn senda gjafir sínar þá leið, skal Sameiningin fúslega veita gjöfunum viö- töku, kvitta fyrir þær og koma þeim til safnaðarins. “Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists”, segir postulinn.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.