Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 7
195
Ungmennafélögin. Var það mál lengi og ítarlega rætt
frá ýmsum hliðum, en ekki önnur samþykt nú gjörð en sú,
að leitast við að endurreisa bandalögin, þar sem ungir menn
eru nú aftur komnir heim úr stríðinu. Að öðru leyti skyldu
nefndarmenn íhuga málið vandlega fram að næsta fundi og
koma þá með tillögur um verkefni og fyrirkomulag.
Útgáfuttiál. Skýrslu um hag útgáfufyrirtækjanna lagði
Jón J. Vopni fyrir fundinn og var hann kosinn ráðsmaður
þeirra fyrir hönd nefndarinnar. Rætt var um íslenzka les-
bók handa íslenzkum unglingum, sem óskað var eftir á
kirkjuþingi 1917 að samin yrði og gefin út. Hafði útgáfu-
nefnd haft það mál til meðferðar, en ekki átt kost á neinum
hæfum manni til að semja bókina. Af sömu ástæðu sá
framkvæmdarnefndin sér ekki fært að gjöra neitt frekar í
því máli að sinni. Nefndin ræddi og um útgáfu kórsöngva,
er minst var á á kirkjuþingi 1917, en samþykt var að fresta
því máli, þar til prófessor Sv. Sveinbjörnsson kæmi. sem
væntanlegur er bráðlega, og leita í því efni ráða ha.ns og
aðstoðar. Nefndin samþykti áskorun til safnaðanna um að
kaupa eftir þörfum sálmabækur til að hafa í kirkjum sínum
og útbýta þeim meðal þeirra, sem sálmabókarlausir koma í
kirkjuna. Um “Sameininguna” var rætt og helzt ráðgjört
að hækka verð blaðsins um næstu árgangamót upp í $1.50..
Nærri öll tímarit hafa fyrir löngu hækkað í verði sökum
pappírsverðs og prentunar. Enn fremur var ráðgert að
vinna kröftulega að því að safna nýjum kaupendum, og var
þrem nefndarmönnum falið að vinna það verk samkvæmt
ráðstöfunum, sem nefndin gerði í þá átt.
Fjármál. Rætt var um það, hverjar aðferðir væri
heppilegastar til þess að hafa saman fé það, er árlega þarf
til starfsmála kirkjufélagsins, og kom mönnum saman um
það, að nothæfast myndi það vera, að gefa hverjum einstök-
um söfnuði heildaryfirlit yfir þarfirnar og bending um,
hversu mikið hann þyrfti að leggja til hverrar einstakrar
starfsgreinar, en hver söfnuður réði sjálfur fjársöfnunar-
fyrirkomulagi hjá sér eftir ástæðum.
pingsyfirlýsingar frá síðasta kirkjuþingi. Skrifari
skýrði frá afgreiðslu þeirra:
1. Áskorun til bæjarráðsins á Gimli um undanþágu á
skatti á Betel. Svar ókomið og þess ekki enn að vænta.
2. Yfirlýsing um aðstöðu kirkjunnar við mannfélags-
mál samtíðarinnar. Hafði yfirlýsingin send verið öllum ís-
lenzku blöðunum. Öll höfðu þau birt hana, en ekkert þeirra