Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 30
218 sólsetur úti fyrir húsi Péturs, og hafði með sér alla þá er sjúkir voru á sál eða líkama, og Jesús læknaði sjúklingana. b. Hví beið fólkið sólseturs? Á sabbatsdeginum máttu Gyðingar ekki ferðast nema ör-stuttan spöl, og því síður flytja nokkuð með sér. En sabbats-helginni var lokið um sólsetur. pá taldi fólk- ið sér leyfilegt að bera sjúklingana til Jesú. 7. Hvað gjörði Jesús eftir það? Hann fór fyrir dögun morguninn eftir út í óbygð til að hvíla sig og biðjast fyrir. Síðan ferðaðist hann um þorpin í grendinni, kendi í samkunduhúsunum og læknaði sjúka, sem leituðu hans. 8. Hvað getum vér lært af lexíunni? (a) Að vanrækja ekki kirkjuna okkar. Jesús lét engan hvíldardag svo líða hjá, að hann ekki kendi fólkinu einhversstaðar í samkundu- húsi, eða í musterinu, ef hann var staddur í Jerúsalem. peir sem hafa ýmugust á kirkjusókn og guðræknisiðkunum, hafa dæmi frelsarans á móti sér. (b) Að láta aldrei hjá líða að gjöra gott, þegar vér höfum tækifæri til þess. Frelsarinn var sífelt að hjálpa öðrum, hvíldardaga sem aðra daga. (c) Að hugsa ekki, að kirkjan ein heyri frelsaranum til. Pétur bauð honum heim með sér, og Jesús læknaði veiki á heimili hans. Bjóddu Kristi heim með þér, þegar þú gengur úr kirkjunni. (c) Að þú mátt ekki vera án bænarinnar. pegar Jesús var þreyttur eftir átorðning fólksins, þá leitaði hann næðis, til þess að biðja föðurinn. pví meir sem annirnar þrengja að þér, því meiri þörf hefir þú á bæninni. Verkefni: 1. Sabbatsdagur með Forn-Gyðingum. 2. Krafta- verk Jesú. 3. Pétur og Jóhannes — hvað þeir höfðu lært af frelsaranum fram að þessum tíma. IV. LEXÍA. — 26. OKTÓBER. Æfing í trausti.—Matt. 14, 22-33. Minnistexti: Eg trúi; hjálpa þú vantrú minni!—Mark. 9, 24. Umræðuefni: Hvernig styðja skuli óstöðugan lærisvein. Til hliðsjónar: Mark. 5, 22-24, 35-43; Lúk. 7, 18-23. 1. Á hvaða ferð voru lærisveinarir, þegar atburður þessi gjörðist? peir voru á leið vestur yfir Galíleu-vatn. Jesús hafði þá um daginn mettað fimm þúsund manns í óbygðinni austan vatnsins. Fólkið varð svo frá sér numið, að það vildi taka Jesú til konungs yfir sig. Hann sendi þá lærisveina sína á bátnum vestur yfir, en 'kom sjálfur frá sér fólkinu og fór upp á fjall til að biðjast fyrir I<ærisveinarnir fengu hvast veður á móti sér og lentu í barningi fram á nótt. 2. Hvað sáu þeir þá? Jesús kom til þeirra gang- nndi á vatninu. 3. Hvernig varð þeim við þá sjón? peir héldu að það væri vofa og æptu upp yfir sig af hræðslu. 4. Hvað sagðí Jesús við þá? “Verið hughraustir, það er eg, verið óhræddir”. 5. Hvað gjörði Pétur? Hann steig út á vatnið, í trausti þess a^

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.