Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 12
200
sd.skóla skránni- Og börnin hafa verið hrædd með sögum
eins og þeim, að þau myndu verða krossfest eða að við
myndum taka þau burtu og deyða þau á einhvern annan
hátt, ef þau héldu áfram að koma til okkar. Á strætunum
benda börn á Mr. Shiina og hrópa: “Hættulegi og vondi
maðurinn!” En Mr. Shiina er trúarsterkur og stöðugur í
bæninni og hann vonast fastlega eftir því, að geta með tím-
anum komið einhverju góðu til leiðar á þessum stöðvum.
Fyrstu 10 dagana í þessum mánuði (Júní) áttum við
mjög annríkt við trúvakninga-samkomur, sem við héldum í
félagi við Canada-Episcopal trúboðið. Á hverjum eftirmið-
degi höfðum við samkomur fyrir börn, og voru að meðaltali
viðstödd 200; og á hverju kvöldi var prédikað, og sóttu þær
samkomur að meðaltali 500 á kvöldi. Árangurinn var sá,
að við fengum í okkar hlut 33, sem vildu af meiri eða minni
alvöru kynnast kristindóminum. Einn námsmaður skrifaði
okkur um daginn og sagðist hafa látið skrifa nafnið sitt á
einum fundinum, en við nánari íhugun hefði hann komist
að þeirri niðurstöðu, að þessi trúmál myndu verða til tafar
á meðan hann væri við námið, svo að hann hefði afráðið að
fresta frekari kynnum af kristindóminum, þangað til hann
hefði lokið skólagöngunni. Ung stúlka lét líka skrifa sig;
en þegar hún kom heim til sín og sagði frá því, reiddist
heimilisfólkið henni ákaflega fyrir það tiltæki, og amma
hennar sagði henni, að hún væri of ung til þess að hugsa
um slíkt; og nú hefir henni verið bannað að fara að heiman.
án þess að einhver sé með henni. Auðvitað fer ekki öllum
þannig, en þetta eru góð sýnishorn af hugsunarhætti meiri
hlutans. Alls telst okkur svo til, að fyrir starf síðastliðins
árs höfum við náð í um 40 manns, sem eru að kynna sér
kristna trú og við þurfum að annast um.
Hér set eg yfirlit yfir starf okkar hér í Nagoya:
Sunnudagar: Sunnudagsskóli, Biblíulestrarflokkur (á
ensku), og 2 guðsþjónustur með prédikun. (Einu sinni á
mánuði er altarisganga og að meðaltali um 20 altarisgestir).
priðjudagar: Barna-samkoma (sd.skóli) heima hjá
okkur, og um kvöldið samkoma fyrir menn í undirborginni
Ttzuta.
Miðvikudagar: Barnasamkoma (sd.skóli) í undirborg-
inni Chikusa, og um kvöldið enskufélags-fundur í trúboðs-
húsinu.
Fimtudagar: Barnasamkoma (sd.skóli) í Kawana-
þorpi. f Chikusa og Wawana prédikun við og við. (Starfið í