Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.09.1919, Blaðsíða 13
201 Kozoji var lagt niður um vetrarmánuðina, en við búumst við að byrja aftur bráðlega). Föstudagar: Biblíunám í trúboðshúsinu fyrir þá. sem eru að kynna sér kristna trú. Lestrarstofan er opin á hverjum degi námsfólki og öðrum. Tímanum, sem ekki er gjört grein fyrir í þessu yfirliti, er varið til þess að koma á heimili og tala við ein- staklinga. Á hverjum mánudagsmorgni komum við starfs- mennirnir saman til bænagjörða, og gjörum að því loknu áætlun um störf vikunnar. Tvisvar eða þrisvar á mánuði höfum við prédikunar-samkomur hér í borginni í “Union Preaching Hall”, sem eg hefi skrifað um áður. Allir lútersku trúboðarnir í Japan eiga mjög annríkt við ýmsar ráðstafanir, sem leiða af samsteypu lútersku heiðingjatrúboðsnefndanna í Ameríku. Eg leyfi mér hér með að vekja athygli á ráðstöfun sameinuðu nafndarinnar viðvíkjandi dönsku lútersku trúboðsnefndinni, sem á einnig trúboð í Japan, og legg fram í því sambandi þessa spurn- ingu: Væri það ráðlega fyrir kirkjufélag vort að eiga full- trúa í þessari sameinuðu heiðingjatrúboðsnefnd? Ráðstöf- un nefndarinnar er á þessa leið: “Samþykt að Heiðingja- trúboðsnefnd sameinuðu lútersku kirkjunnar í Ameríku bjóði dönsku kirkjunni í Ameríku að senda fulltrúa á fundi nefndar vorrar, er hafi fullkominn atkvæðisrétt, þangað til Sam. lút. kirkjan hefir sagt til um það, hvort þessi réttindi skuli veitt, og að Heiðingjatrúboðsnefndin mælist til þess, að framkvæmdarnefnd Sam. lút. kirkjunnar samþykki þessa ráðstöfun.” Virðingarfylst, S. O. Thorláksson. Aths. — pessi skýrsla trúboðans kom til mín 26. Júlí með bréfi dags. 23. Júní. Skýrslan varð síðbúin frá hans hendi vegna óvenjulega mikils annríkis, sem stafaði með- fram af því, að aðstoðarmenn hans, Mr. Takashima og Mr. Shiina voru báðir veikir um tíma, og sjálfur þurfti hann að flytja sig. Heimilisfang hans er nú: 59 Yaba-cho, 5 no-kiri, Naka-ku, Nagoya, Japan. F. H. Minningarorð. Orð þessi eru rituð til minningar um feðga, sem heima áttu að Steinstöðum í Víðinesbygð í Nýja Islandi, og voru kallaðir heim til föðurins á himnum með liðugu árs millibili.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.