Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1919, Page 8

Sameiningin - 01.09.1919, Page 8
196 metið hana umtalsverða. Kvörtuðu fundarmenn yfir tóm- læti allra fréttablaðanna íslenzku í sambandi við kirkjuþing og starf kirkjunnar alment. 3. Tilkynning til safnaðanna, sem úr kirkjufélaginu gengu. Skrifari hafði tilkynt bréflega söfnuðunum þá ósk kirkjufélagsins, að þeir kæmi aftur í félagið. Hafði hann þegar fengið svar sumra safnaðaskrifara og þá umsögn, að málið mundi lagt fyrir söfnuðina á ársfundi. Raddir hefðu og komið frá mönnum í þeim söfnuðum, sem léti í ljós von- brigði út af afgreiðslu málsins á kirkjuþingi, því samkomu- lags vonin hvíldi á þeim grundvelli, sem tekinn er fram í samningi þeim, sem gjörður var í fyrra og undirskrifaður af embættismönnum kirkjufélagsins og fulltr'um úr Tjald- búðarsöfnuði. Næsti fundur framkvæmdarnefndarinnar verður, ef Guð lofar, haldinn í öndverðum Desember-mánuði. Séra Jón J. Clemens, sem áður var prestur í kirkjufé- lagi voru, en hefir nú margt ár starfað hjá ensk-lúterskum söfnuðum og nú síðast í búðum Bandaríkjahersins, hefir nú tekið að sér prestþjónustu við Markúsarkirkjuna lútersku í Emporia, Kansas. Yar hann settur þar inn í embættið með hátíðlegri athöfn sunnudaginn 14. þ. m. — Vér óskum hon- um blessunar Drottins. Séra Runólfur Rúnólfsson, eitt sinn prestur fslendinga í Spanish Fork í Utah, er kominn til Winnipeg og tekinn við þjónustu í Skjaldborgarsöfnuði. Vér bjóðum hann vel- kominn og óskum honum góðs gengis. Þriðja ársskýrsla trúboðans til kirkjufélagsins. Síðan eg gaf kifkjufélaginu ársskýrslu í fyrra, hefir trúboðið gjört þessa ráðstöfun viðvíkjandi starfi okkar: “Samkvæmt því, að trúboðið hafði í huga, er það ráðlagði að séra S. 0. Thorláksson yrði fluttur til Nagoya 1917, ráðlegg- ur það nú, að honum sé falin umsjón með Nagoya-stöðinni, er Mr. Horn fer þaðan.” pessa ráðstöfun staðfesti trúboðs- nefndin í Ameríku, og Mr. Horn er farinn héðan, og er því trúboði yðar hér eftir einn, til þess að duga eða drepast. pessi ráðstöfun komst í framkvæmd á síðastliðnum páskum, og síðan hefi eg verið að kynna mér starfið hér og koma mér

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.